fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
433Sport

Chelsea ætlar að reyna að hafa betur gegn Manchester félögunum

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 22. apríl 2026 21:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Chelsea hyggst reyna að stela Elliot Anderson undan nefi Manchester City og Manchester United í sumar.

Miðjumaðurinn, sem leikur með Nottingham Forest, hefur verið orðaður við bæði Manchester-liðin eftir sterkar frammistöður að undanförnu. Anderson gekk til liðs við Forest árið 2024 frá Newcastle United fyrir um 35 milljónir punda.

Talið er að verðmiðinn á leikmanninum sé kominn upp í um 100 milljónir punda og því yrði um stór kaup að ræða. Anderson, sem er 23 ára, á enn þrjú ár eftir af samningi sínum við Forest.

Chelsea virðist þó tilbúið að blanda sér af krafti í baráttuna og reyna að næla í leikmanninn. Baráttan um Anderson gæti því orðið ein sú heitasta á félagaskiptamarkaðnum í sumar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Að öllu óbreyttu mun United ekki kaupa í þessa stöðu í sumar

Að öllu óbreyttu mun United ekki kaupa í þessa stöðu í sumar
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Dregið í bikarnum og Bestu deildarliðin mæta til leiks – Eitt lið úr 2. deild

Dregið í bikarnum og Bestu deildarliðin mæta til leiks – Eitt lið úr 2. deild
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Fyrrum leikmaður Manchester City á óskalista Arteta

Fyrrum leikmaður Manchester City á óskalista Arteta
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Rooney telur að Arsenal skáki City og nefnir hvers vegna

Rooney telur að Arsenal skáki City og nefnir hvers vegna
433Sport
Í gær

Talið að United gæti losað sig við allt að 13 leikmenn í sumar

Talið að United gæti losað sig við allt að 13 leikmenn í sumar
433Sport
Í gær

Segir þetta kröfuna í Kópavogi á komandi vikum

Segir þetta kröfuna í Kópavogi á komandi vikum