
The Atlantic ræddi við þó nokkra aðila innan FBI sem og fyrrverandi starfsmenn en af frásögnum þessara aðila má ráða að Patel sé ekki starfi sínu vaxinn. Fréttin hefst á umfjöllun um atvik sem átti sér stað núna 10. apríl. Þetta var föstudagur og Patel var við það að skella sér í helgarfrí. Hann reyndi þá að skrá sig inn í innra tölvukerfi FBI. Honum gekk það eitthvað illa og varð fljótlega sannfærður um að það væri búið að læsa hann út úr kerfinu og að hann væri rekinn úr embætti. Fór hann í kjölfarið að hringja í aðstoðarmenn og bandamenn sína í töluverðu uppnámi. Hefur miðillinn þetta eftir níu ólíkum aðilum sem þekkja til málsins. Tveir þessara aðila lýstu því sem svo að Patel hafi verið í móðursýkiskasti.
Loksins kom á daginn að um tæknilega örðugleika var að ræða. Patel hafði ekki verið rekinn. Greiðlega gekk að leysa úr tæknimálunum og Patel gat skráð sig inn en móðursýkiskast hans fór sem eldur í sinu um FBI þar sem mönnum þótti lítið til þess koma. Mun þetta þó vera merki um að Patel óttast um stöðu sína hjá ríkisstjórninni og margir telja að áhyggjur hans séu réttmætar. Orðið á götunni sé að Patel verði næstur til að fá reisupassann en heimavarnaráðherranum Kristi Noem var vikið úr embætti í byrjun mars og dómsmálaráðherranum Pam Bondi var vikið úr embætti núna í byrjun apríl.
Einn embættismaður innan FBI sagði við The Atlantic: „Við erum bara að bíða eftir tilkynningunni.“ Miðillinn hefur það jafnframt eftir heimildarmönnum innan Hvíta hússins að ríkisstjórnin sé nú að leita að eftirmanni Patels. Ekki vill ríkisstjórnin þó gangast við þessu opinberlega en talsmaður forsetaembættisins, Karoline Leavitt, segir í svörum sínum til miðilsins að Patel hafi unnið mikið þrekvirki í embætti. Honum hafi tekist að lækka glæpatíðnina gríðarlega og koma stórglæpamönnum á bak við lás og slá.
„Patel er enn mikilvægur leikmaður í teymi ríkisstjórnarinnar um lög og reglu. Hann hefur áorkað meiru á 14 mánuðum en fyrri ríkisstjórn tókst á fjórum árum. Aftökugreinar á vegum nafnlausra aðila jafngilda ekki blaðamennsku.“
FBI sendi stutta yfirlýsingu vegna fréttaflutningsins: „Prentið þetta, þetta er allt rangt. Ég sé þig í dómsal – taktu ávísanaheftið þitt með.“
The Atlantic stendur þó við fréttaflutninginn. Heimildarmenn lýsa því að embættistíð Patels hafi einkennst af ofsóknarbrjálæði, tortryggni og hvatvísi. Hann sé hræðilegur yfirmaður og framkoma hans ógn við þjóðaröryggi. Eins lýsa heimildarmenn óhóflegri áfengisneyslu Patels og miklum og óskýrðum fjarvistum. Hann eigi það til að láta sig hverfa. Hann hafi meðal annars þurft að fresta fundum á morgnana vegna óhóflegrar áfengisneyslu kvöldið áður. Stundum hafi lífverðir Patels átt erfitt með að koma honum á fætur vegna áfengisáhrifa.
Nokkrir heimildarmenn lýstu því að starfsmenn FBI óttist að greina opinberlega frá óánægju sinni með Patel enda sé hann haldinn ofsóknarbrjálæði og hiki ekki við að reka fólk sem hann telur ekki sýna honum hollustu. Hafa starfsmenn meðal annars verið látnir ganga undir lygapróf þegar gögnum eða upplýsingum hefur verið lekið til fjölmiðla. Stóraukin starfsmannavelta hafi orðið til þess að nú skorti á reynslu innan FBI sem sé ógn við þjóðaröryggi.