
Það þurfti að slökkva á hljóðnemanum í viðtali Sky Sports við Erling Braut Haaland eftir sigur Manchester City á Arsenal í gær.
Haaland skoraði sigurmarkið í 2-1 sigri á Etihad og hrósaði liðsfélaga sínum Bernardo Silva, sem var honum við hlið í viðtalinu, fyrir frammistöðuna, en fór yfir strikið í orðavali.
„Þú varst eins og fokking Fabio Cannavaro,“ sagði Norðmaðurinn áður en viðmælandinn Patrick Davidson minnti hann á að vanda orðavalið. Myndband af þessu er hér neðar.
Sigur City setur titilbaráttuna í háaloft, en liðið er nú aðeins þremur stigum á eftir Arsenal og á leik til góða.
Haaland got his mic muted 🤣 pic.twitter.com/pLOtkp64o2
— James (@JamesxFCx) April 19, 2026