fbpx
Laugardagur 18.apríl 2026
Fókus

Stjarnan úr American Pie mætt á OnlyFans

Fókus
Fimmtudaginn 16. apríl 2026 20:30

Shannon Elizabeth telur að OnlyFans sé framtíðin.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikkonan Shannon Elizabeth, sem margir þekkja úr kvikmyndinni American Pie, hefur greint frá því að hún sé að hefja nýjan kafla á ferli sínum með því að opna aðgang á OnlyFans.

Þar hyggst hún sýna aðdáendum sínum meira af „kynþokkafullri“ hlið sinni.

Elizabeth, sem sló í gegn í hlutverki skiptinemans Nadiu í American Pie árið 1999, sagði í samtali við People að ákvörðunin markaði ákveðin tímamót.

„Ég hef eytt öllum mínum ferli í Hollywood, þar sem annað fólk stjórnaði frásögninni og niðurstöðunni fyrir feril minn,“ sagði hún.

Hún segir að með þessu taki hún loks stjórnina sjálf.

„Þessi nýi kafli snýst um að breyta því, sýna meira sexý hlið sem enginn hefur séð, og vera nær aðdáendum mínum.“

Að hennar sögn varð OnlyFans fyrir valinu vegna þess að miðillinn geri henni kleift að eiga beint samband við fylgjendur sína og skapa efni á eigin forsendum.

„Ég vel OnlyFans vegna þess að það gerir mér kleift að tengjast beint við áhorfendur mína, skapa á mínum eigin forsendum og einfaldlega vera frjáls. Ég held í alvöru að þetta sé framtíðin.“

Elizabeth, sem nú býr í Suður-Afríku, rifjaði einnig upp hvernig hún fékk hlutverk sitt í American Pie. Hún sagði reynslu sína úr fyrirsætustörfum hafa hjálpað sér mikið þegar kom að því að stíga inn í hlutverk Nadiu.

Shannon Elizabeth hefur ekki látið mikið fyrir sér fara í Hollywood á undanförnum árum og helst farið með hlutverk í ódýrari myndum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Einhver lest sem við settum í gang og fór algjörlega út af sporinu“

„Einhver lest sem við settum í gang og fór algjörlega út af sporinu“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Rúrik hefur látið 5,5 milljóna verðlaunafé renna til SOS – Framburður á firði og Vatnajökli skiluðu sigri í síðustu keppni

Rúrik hefur látið 5,5 milljóna verðlaunafé renna til SOS – Framburður á firði og Vatnajökli skiluðu sigri í síðustu keppni
Fókus
Fyrir 4 dögum

Leikkona sakar Katy Perry um kynferðisbrot – „Nuddaði viðbjóðslegu píkunni sinni á andlitið á mér“

Leikkona sakar Katy Perry um kynferðisbrot – „Nuddaði viðbjóðslegu píkunni sinni á andlitið á mér“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Þriðja dóttirin fædd

Þriðja dóttirin fædd
Fókus
Fyrir 5 dögum

Raunveruleikastjarnan látin aðeins þrítug að aldri

Raunveruleikastjarnan látin aðeins þrítug að aldri