fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Átökum stórstjarnanna lokið – Var sökuð um að siga öryggisverði á 11 ára barn

433
Miðvikudaginn 15. apríl 2026 14:30

Screenshot

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrum úrvalsdeildarleikmaðurinn Jorginho hefur nú bundið endi á opinbera deilu sína við söngkonuna Chappell Roan eftir atvik sem átti sér stað á Lolla-hátíðinni í Brasilíu.

Jorginho gagnrýndi Roan opinberlega eftir að hann taldi að öryggisvörður hennar hefði komið fram með ógnandi hætti gagnvart eiginkonu hans og 11 ára dóttur á hóteli í Sao Paulo. Dóttirin hafði séð Roan og fór hún nær henni til að athuga hvort þetta væri ekki örugglega hún. Öryggisvörðurinn nálgaðist mæðgurnar í kjölfarið.

Meira
Brjálaður út í dragdrottningu: Segir öryggisverði hennar hafa öskrað á barn og eiginkonu í morgunmat – „Ég hata ekki börn“

Nú hefur hann þó leiðrétt málið eftir að nýjar upplýsingar komu fram. Samkvæmt þeim hafði Roan enga vitneskju um atvikið og hafði ekki beðið neinn um að ónáða fjölskylduna. Öryggisvörðurinn hafi í raun verið að vinna fyrir annan listamann.

Jorginho hafði gagnrýnt Roan harkalega og fleiri þekkt nöfn tekið undir með honum. Nú segist hann hins vegar hafa brugðsist við í hita leiksins og segir málinu lokið.

Jorginho, sem er fyrrum leikmaður Arsenal og Chelsea, er leikmaður Flamengo í Brasilíu í dag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki
433Sport
Í gær

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt
433Sport
Fyrir 2 dögum

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands