
Ákærukviðdómur í Tallahassee tók á mánudag þá ákvörðun að gefa ætti út ákæru á hendur lækninum, Thomas Shaknovsky, sem er 44 ára.
Maðurinn sem Thomas gerði aðgerðina á, hinn sjötugi William Bryan, lést í aðgerðinni sem framkvæmd á Ascension Sacred Heart Emerald Coast-sjúkrahúsinu í Miramar Beach. William var fyrrverandi hermaður, að því er fram kemur í frétt The Guardian.
Bryan og eiginkona hans voru í fríi í Flórída þegar hann leitaði á sjúkrahús vegna verkja. Við myndgreiningu kom fram grunur um stækkað milta, og stóð til að framkvæma kviðsjáraðgerð til að fjarlægja það.
Samkvæmt gögnum málsins hélt læknirinn aðgerðinni áfram þó að honum hefði fljótlega átt að vera ljóst að alvarleg mistök hefðu átt sér stað. Saksóknarar segja að lifrin hafi verið fjarlægð í stað miltans sem olli miklum blóðmissi og leiddi að lokum til dauða Bryans á skurðarborðinu.
Þá er því einnig haldið fram að læknirinn hafi eftir aðgerðina sagt eiginkonu Bryans að „miltað” hefði verið um fjórfalt stærra en eðlilegt getur talist og hefði færst yfir á hina hlið líkamans. Sú lýsing samræmist hins vegar staðsetningu lifrarinnar.
Í einkamáli sem fjölskylda Bryans hefur höfðað er því haldið fram að Shaknovsky hafi ítrekað hvatt hann til að fara í aðgerðina, þrátt fyrir að Bryan hafi viljað snúa aftur heim til Alabama til frekari meðferðar.
Heilbrigðisyfirvöld í Flórída sviptu lækninn starfsleyfi nokkrum vikum eftir að atvikið átti sér stað. Þá hefur hann einnig misst lækningaleyfi sín í Alabama og New York.
Að sögn yfirvalda í Walton-sýslu taldi kviðdómurinn nægar líkur á að háttsemi læknisins væri refsiverð. Verði Shaknovsky sakfelldur fyrir manndráp af gáleysi af annarri gráðu getur hann átt yfir höfði sér allt að 15 ára fangelsi.