
Einn þeirra er Bretinn Craig Hamilton-Parker, sem er kallaður „Nýi Nostradamus“ af áhangendunum sínum.
Hann segist hafa spáð fyrir um stóra atburði á borð við Brexit og heimsfaraldur kórónuveirunnar.
Nú beinir hann sjónunum, og spádómsgáfunni, að Bandaríkjunum og spáir fyrir um atburði sem ganga gegn gildandi leikreglum. Mirror skýrir frá þessu.
Hann segir ekki útilokað að Donald Trump muni taka þriðja kjörtímabilið sem forseti þrátt fyrir að stjórnarskráin kveði á um að enginn megi gegna forsetaembættinu lengur en í tvö kjörtímabil.
Hann segir að heimurinn stefni inn í svo mikið breytingaskeið að gildandi reglur muni eiga í vök að verjast. „Ég hef á tilfinningunni að það verði stór alþjóðleg deila, hugsanlega verður Taívan hluti af henni,“ sagði hann.
Hann benti á vaxandi spennu víða umheim sem hugsanlegan drifkraft á bak við breytingar í hinu pólitíska kerfi.
Hann benti á að þróun mála núna sé í þá átt að atburðir, sem áður þóttu óhugsandi, geti orðið að veruleika. Hann sagði þetta geta leitt til þess að ákvarðanir verði teknar sem reyna á viðteknar lýðræðislegar venjur.