
Lögreglan tók tilkynningunni auðvitað alvarlega og hóf þegar í stað eftirgrennslan en málið reyndist allt hið undarlegasta.
Það var í lok desember 2021 sem gömul blind kona hringdi í lögregluna og sagðist hafa áhyggjur af 76 ára eiginmanni sínum, William Robert Lang Jr. því hann hefði horfið daginn áður og það var mjög ólíkt honum sagði hún.
LadBible segir að þegar lögreglan kom heim til konunnar hafi hún strax séð að eitthvað var að. Bílar William voru fyrir utan húsið og þegar lögreglumennirnir gengu hring í kringum húsið sáu þeir að rúða var brotin. Það hafði konan auðvitað ekki getað séð.
Hún leyfði lögreglumönnunum að leita í húsinu og það tók þá ekki langan tíma að finna eiginmann hennar. William lá dáinn í rúminu sínu. Ekki nóg með það, hann hafði verið skotinn mörgum skotum.
Konan hafði verið í húsinu í 36 klukkustundir ásamt líkinu án þess að vita að William var dáinn.
Réttarmeinafræðingar staðfestu fljótlega það sem lögreglan óttaðist. William hafði verið myrtur.
Lögreglan stóð nú frammi fyrir ráðgátunni um hver braut rúðuna og fór inn í húsið og skaut William? Og af hverju var hann skotinn?
Málið er enn óleyst.