
Tristan Hulbert, forstjóri Vivid Care, segir að það geti verið hættulegt að sitja með krosslagða fætur í langan tíma því það geti aukið líkurnar á blóðtappa mikið.
í samtali við Express sagði hann að margir þeirra, sem vinna á skrifstofum eða heima fyrir framan tölvu, átti sig ekki á að þessi stelling geti verið hættuleg.
Hann sagði að krosslagðir fætur hamli blóðflæðinu í fótunum og geti valdið ástandi sem sérfræðingar kalla „e-thrombosis“.
Hann sagði að það sem gerist, þegar fæturnir eru krosslagðir, sé að þrýstingurinn frá öðrum fætinum á hinn geti dregið úr blóðflæðinu um 30% og það geri skrifborðsstólinn hugsanlega hættulegan heilsunni. „Það sem veldur mér mestum áhyggjum er hversu algengt það er að fólk sitji svona. Farðu bara inn á einhverja skrifstofu eða kaffihús og þú sérð fólk sitja með krosslagða fætur, án þess að vita að það er hamlar hugsanlega blóðflæðinu,“ sagði hann.
Hann ráðleggur kyrrsetufólki að taka sér pásu á 90 mínútna fresti til að hreyfa sig og örva blóðflæðið.
„Ég mæli með 90 mínútna reglunni því það er um það bil eftir þann tíma sem líkaminn fer að finna fyrir áhrifum takmarkaðs blóðflæðis. Stilltu klukku, stattu upp, gakktu að glugganum, aðeins 30 sekúndna hreyfing getur núllstillt blóðflæðið,“ sagði hann.