fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Pressan

Þessar fæðutegundir geta bætt svefn barna

Pressan
Sunnudaginn 12. apríl 2026 07:30

Vonandi kaupir hún hollan mat handa börnunum. Mynd: Pexels.com

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það sem börn borða áður en þau fara í háttinn getur haft mikil áhrif á hversu auðveldlega þau sofna. Næringarfræðingur segir að svefn og mataræði tengist og mjög litlar breytingar á hversdeginum geti fært foreldrum, og börnum, rólegri kvöld.

Newsweek skýrir frá þessu og segir að samkvæmt leiðbeiningum úr Journal of Clinical Sleep Medicine, þá eigi börn á aldrinum 3 til 5 ára að sofa 10 til 13 klukkustundir á dag, eru lúrar inni í þessari tölu. Börn á aldrinum 6 til 12 ára eiga að sofa 9 til 12 klukkustundir.

Belle Amatt, næringarfræðingur, sagði í samtali við Newsweek að svefn og næring séu nátengd hjá börnum. Ákveðin næringarefni og matarvenjur geti annað hvort stýrt eða truflað eðlileg svefnferli líkamans.

Eitt mikilvægasta næringarefnið í tengslum við svefn er amínósýran tryptófan en líkaminn notar hana til að búa til serótónín og melatónín, sem eru hormónar sem stýra svefnryþmanum.

Amatt sagði að tryptófan sé til dæmis í eggjum, fuglakjöti, höfrum, bönunum og hnetum. „Þessar fæðutegundir virka best þegar þeirra er neytt með flóknum kolvetnum sem hjálpa tryptófani að komast í gegnum blóð-heila-fyrirstöðuna,“ sagði hún.

Magnesíum er annað næringarefni sem getur leikið hlutverk í þessu. Það er til dæmis í hnetum, fræjum, grófu korni og grænu blaðsalati. Það hjálpar vöðvunum að slaka á og kemur jafnvægi á taugakerfið. Það getur þannig gert börnum auðveldara fyrir við að sofna.

Hún benti einnig á mikilvægi vökva fyrir börn því heilinn sé mjög viðkvæmur fyrir vökvajafnvæginu. Smávegis vökvaskortur geti gert börn pirruð og eirðarlaus.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Tveir lögreglumenn dæmdir til dauða fyrir dráp á mótmælanda

Tveir lögreglumenn dæmdir til dauða fyrir dráp á mótmælanda
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Vísindamenn segja niðurstöður nýrrar rannsóknar um gagnaver mikið áhyggjuefni

Vísindamenn segja niðurstöður nýrrar rannsóknar um gagnaver mikið áhyggjuefni
Pressan
Í gær

Pútín breytir reglunum – Nú geta fleiri verið sendir á vígvöllinn

Pútín breytir reglunum – Nú geta fleiri verið sendir á vígvöllinn
Pressan
Í gær

Ný lög í Rússlandi sem eiga að vernda rússneska ríkisborgara erlendis

Ný lög í Rússlandi sem eiga að vernda rússneska ríkisborgara erlendis
Pressan
Í gær

Notar þú símann þegar þú ert að elda? – Þá skaltu hugsa þig vel um

Notar þú símann þegar þú ert að elda? – Þá skaltu hugsa þig vel um
Pressan
Í gær

Ertu komin(n) yfir fimmtugt? – 4 auðveldar æfingar sem geta hjálpað þér að minnka magafituna

Ertu komin(n) yfir fimmtugt? – 4 auðveldar æfingar sem geta hjálpað þér að minnka magafituna