fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Pressan

Ný rannsókn – Minna sætur matur dregur ekki úr lönguninni í sykur

Pressan
Sunnudaginn 12. apríl 2026 16:30

Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Um langa hríð hefur fólki verið ráðlagt að draga úr neyslu á sætum matvælum því að það myndi hafa í för með sér minni löngun í sykur og þar með bætta heilsu. En niðurstöður nýrrar rannsóknar frá Bournemouth University benda til að þetta sé ekki rétt.

Í rannsókninni, sem hefur verið birt í American Journal of Clinical Nutrition, kemur fram að það hafi ekki áhrif á löngun okkar í sætindi þrátt fyrir að við borðum minna af sætum matvælum.

180 manns tóku þátt í rannsókninni. Þeim var skipt í þrjá hópa og fékk hver hópur mismunandi mikið af sætum mat. Sumir borðuðu mjög sætan mat, aðrir minna og þriðji hópurinn lá þar á milli. Maturinn samanstóð af  sykri, náttúrulega sætum matvælum og sætuefnum.

Vísindamennirnir fylgdust með þátttakendunum í sex mánuði og mældu meðal annars þyngd þeirra og fylgdust með hvort þeir sýndu merki um sjúkdóma á borð við sykursýki og hjartavandamál.

Niðurstöðurnar sýndu engan skýran mun á milli hópanna þriggja. Hvorki heilsufar þeirra né löngun í sætan mat breyttist að neinu marki. Þess utan hurfu margir aftur til gömlu matarvenjanna sinna eftir því sem á leið.

Niðurstöður rannsóknarinnar benda til að það sé ekki sæta bragðið sem sé í sjálfu sér vandamál og fái fólk til að borða meiri sykur og önnur sæt matvæli.

Það sem skiptir hins vegar máli er hversu mikinn sykur og margar hitaeiningar maður innbyrðir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Tveir lögreglumenn dæmdir til dauða fyrir dráp á mótmælanda

Tveir lögreglumenn dæmdir til dauða fyrir dráp á mótmælanda
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Vísindamenn segja niðurstöður nýrrar rannsóknar um gagnaver mikið áhyggjuefni

Vísindamenn segja niðurstöður nýrrar rannsóknar um gagnaver mikið áhyggjuefni
Pressan
Í gær

Pútín breytir reglunum – Nú geta fleiri verið sendir á vígvöllinn

Pútín breytir reglunum – Nú geta fleiri verið sendir á vígvöllinn
Pressan
Í gær

Ný lög í Rússlandi sem eiga að vernda rússneska ríkisborgara erlendis

Ný lög í Rússlandi sem eiga að vernda rússneska ríkisborgara erlendis
Pressan
Í gær

Notar þú símann þegar þú ert að elda? – Þá skaltu hugsa þig vel um

Notar þú símann þegar þú ert að elda? – Þá skaltu hugsa þig vel um
Pressan
Í gær

Ertu komin(n) yfir fimmtugt? – 4 auðveldar æfingar sem geta hjálpað þér að minnka magafituna

Ertu komin(n) yfir fimmtugt? – 4 auðveldar æfingar sem geta hjálpað þér að minnka magafituna