fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Pressan

Lýsa hrottafenginni árás á morðingjann: „Ég gerði það, ég drap hann“

Pressan
Föstudaginn 27. febrúar 2026 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Breski morðinginn Ian Huntley er enn þungt haldinn á sjúkrahúsi eftir að ráðist var á hann í HMP Frankland-fangelsinu í Durham í gærmorgun. Huntley, sem er 52 ára, afplánar lífstíðardóm fyrir morðin á hinum 10 ára gömlu Holly Wells og Jessicu Chapman árið 2002.

Árásin átti sér stað klukkan 09:30 í gærmorgun, á meðan Huntley var við vinnu í sorpflokkunarstöð fangelsisins ásamt öðrum föngum.

Samfangi hans er sagður hafa gripið málmstöng úr nálægri grind og ráðist að Huntley eftir að til ósættis kom á milli þeirra. Var hann meðal annars barinn ítrekað í höfuðið með þeim afleiðingum að hann hlaut mikla áverka.

Sjá einnig: Ian Huntley var sakleysið uppmálað þegar Holly og Jessica hurfu

Heimildir Daily Mail herma að árásarmaðurinn hafi verið hinn 43 ára gamli Anthony Russell sem situr inni fyrir þrjú morð.

Fangar eru sagðir hafa fagnað þegar hann var leiddur burt í handjárnum. Þá er hann sagður hafa kallað: „Ég gerði það, ég gerði það. Ég drap hann, ég drap hann.“

Heimildarmaður innan fangelsisins sagði við Daily Mail:

„Huntley var að vinna við sorpvinnslu með öðrum föngum úr álmu A, sem er einangrunarálma fyrir fanga sem geta ekki verið meðal almennra fanga vegna eigin öryggis. Hinn fanginn náði í málmstöng úr málmgrindunum og lamdi Huntley þrisvar í höfuðið með henni. Þetta var mjög, mjög alvarlegur áverki.”

Huntley var húsvörður í skóla Holly og Jessicu en hann myrti stúlkurnar eftir að hann lokkaði þær inn á heimili sitt. Huntley losaði sig við líkin í ræsi í um 30 kílómetra fjarlægð, skammt frá athafnasvæði Konunglega breska flughersins í Lakenham í Suffolk.

Huntley bar eld að líkunum í tilraun til að eyðileggja allt sem hugsanlega gæti bendlað hann við ódæðið. Lík stúlknanna fundust hálfum mánuði eftir að þær hurfu.

Ítrekað hefur verið ráðist á Huntley í fangelsinu og var hann til dæmis skorinn á háls árið 2010. Þá tókst læknum naumlega að bjarga lífi hans.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Tveir lögreglumenn dæmdir til dauða fyrir dráp á mótmælanda

Tveir lögreglumenn dæmdir til dauða fyrir dráp á mótmælanda
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Vísindamenn segja niðurstöður nýrrar rannsóknar um gagnaver mikið áhyggjuefni

Vísindamenn segja niðurstöður nýrrar rannsóknar um gagnaver mikið áhyggjuefni
Pressan
Í gær

Pútín breytir reglunum – Nú geta fleiri verið sendir á vígvöllinn

Pútín breytir reglunum – Nú geta fleiri verið sendir á vígvöllinn
Pressan
Í gær

Ný lög í Rússlandi sem eiga að vernda rússneska ríkisborgara erlendis

Ný lög í Rússlandi sem eiga að vernda rússneska ríkisborgara erlendis
Pressan
Í gær

Notar þú símann þegar þú ert að elda? – Þá skaltu hugsa þig vel um

Notar þú símann þegar þú ert að elda? – Þá skaltu hugsa þig vel um
Pressan
Í gær

Ertu komin(n) yfir fimmtugt? – 4 auðveldar æfingar sem geta hjálpað þér að minnka magafituna

Ertu komin(n) yfir fimmtugt? – 4 auðveldar æfingar sem geta hjálpað þér að minnka magafituna