fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Dró að sér sjö milljónir í sumarstarfi hjá Happdrætti Háskóla Íslands

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 26. febrúar 2026 15:56

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kona sem starfaði sem sumarstarfsmaður Happdrættis Háskóla Íslands árið 2023 hefur verið dæmd í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir fjárdrátt. Annars vegar tók hún rúmlega 2 milljónir í reiðufé sem var geymt í peningaskáp á starfsstöð sem hún ein hafði aðgang að og hins vegar dró hún sér 5 milljónir af reikningi dótturfélags happdrættisins, Húseignarinnar Steindórsprents, og lagði inn á eigin reikning. Ávinninginn nýtti hún svo í eigin þágu. Þetta kemur fram í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem féll fyrir hálfum mánuði síðan.

Konan játaði skýlaust sök í málinu, en hún hafði ekki áður gerst sek um auðgunarbrot og dómari taldi að á sakavottorði hennar væri ekki að finna brot sem hefðu áhrif á ákvörðun refsingar í málinu. Það horfði henni til málsbóta að hafa játað og samþykkt bótakröfur og eins kom fram að konan hefur leitað sér meðferðar vegna fíknisjúkdóms og snúið lífi sínu til betri vegar. Á sama tíma taldi dómari ómögulegt að líta fram hjá því að hún hafi gerst sek um fjárdrátt sem varðar talsverða fjárhæð. Refsing hennar þótti því hæfilega ákveðin sem 30 daga fangelsi en að virtum atvikum verður fullnustu refsingar frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Konan þarf að endurgreiða Happdrætti Háskóla Íslands og Húseigninni Steindórsprenti það sem hún stal ásamt dráttarvöxtum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Slapp með skrekkinn – Reiddist verulega eftir að aðdáun hans á „saurlífissíðum“ var afhjúpuð

Slapp með skrekkinn – Reiddist verulega eftir að aðdáun hans á „saurlífissíðum“ var afhjúpuð
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stefán afhjúpar þekkingarleysi ungra Sjálfstæðismanna – Verðlaunuðu látinn mann sem rak einokunarfyrirtæki

Stefán afhjúpar þekkingarleysi ungra Sjálfstæðismanna – Verðlaunuðu látinn mann sem rak einokunarfyrirtæki
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa