fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Vinicius Junior dansaði aftur og Real flaug áfram – Meistarar síðasta árs einig komnir í pottinn

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 25. febrúar 2026 22:00

Vinicius Junior dansar Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Real Madrid er komið áfram í 16 liða úrslit Meistaradeildarinnar eftir 2-1 sigur á Benfica í kvöld og 3-1 samanlagt.

Gestirnir komust yfir en Aurélien Tchouaméni jafnaði í fyrri hálfleik. Það var svo Vinicius Junior sem tryggði Real sigurinn í kvöld þegar um tíu mínútur voru eftir.

Vinicius skoraði einnig í fyrri leiknum og segist svo hafa orðið fyrir kynþáttaníði skömmu síðar. Fátt annað hefur verið rætt um frá því atviki og markið fyrir Vini virtist þýðingarmikið.

Hann tók sama fagn og í fyrri leiknum og dansaði við hornfánann.

Á sama tíma gerðu PSG og Monaco 2-2 jafntefli og samanlagt fer PSG áfram með 5-4 sigri úr einvíginu. Marquinhos og Khvicha Kvaratskhelia skoruðu mörk PSG.

Framlengja þarf einvígi Juventus og Galatasaray en Tyrkirnir unnu fyrri leikinn 5-2 en töpuðu 3-0 í kvöld. Juventus skoraði tvö mörk í síðari hálfleik eftir að hafa orðið tíu en Lloyd Kelly lét reka sig af velli í upphafi síðari hálfleiks.

Atalanta tryggði sig áfram fyrr í kvöld með sigri á Dortmund.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Liverpool setur á hann svimandi háan verðmiða vegna áhuga frá Spáni

Liverpool setur á hann svimandi háan verðmiða vegna áhuga frá Spáni
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Vinna við að spila fótbolta en horfa lítið á hann – „Næs að gleyma mér alveg þegar ég hef minn frítíma“

Vinna við að spila fótbolta en horfa lítið á hann – „Næs að gleyma mér alveg þegar ég hef minn frítíma“
433Sport
Í gær

Eiga enn erfitt með að ræða síðasta sumar – „Þetta tók sinn tíma en maður verður að horfa upp á við“

Eiga enn erfitt með að ræða síðasta sumar – „Þetta tók sinn tíma en maður verður að horfa upp á við“
433Sport
Í gær

Ræða innkomu Ólafs í starfið – „Veit mikið og talar mikið“

Ræða innkomu Ólafs í starfið – „Veit mikið og talar mikið“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Rekinn korter í HM

Rekinn korter í HM
433Sport
Fyrir 2 dögum

Opnar sig um að mjög frægur maður hafi heimtað nektarmynd – Tengdist loforði sem hún hafði gefið

Opnar sig um að mjög frægur maður hafi heimtað nektarmynd – Tengdist loforði sem hún hafði gefið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Chelsea fær ansi góðar fréttir

Chelsea fær ansi góðar fréttir