fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Fókus

Birta Blanco húsnæðislaus og segist svikin af borginni

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 24. febrúar 2026 14:30

Áhrifavaldurinn Birta Blanco er ekki sátt við Reykjavíkurborg. Mynd/Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áhrifavaldurinn Birta Blanco er húsnæðislaus og segist vera svikin af Reykjavíkurborg. Hún er einstæð móðir sem glímir við heilsuvanda.

Mannlíf greinir frá þessu.

Birta er þriggja barna móðir með tvö í sinni umsjá. Eitt þeirra er í greiningarferli fyrir ADHD og einhverfu.

Sjálf hefur hún þurft að kljást við heilsubrest. Það er hún hefur verið flogaveik og er í greiningarferli fyrir POTS heilkenni.

Birta segist hafa misst húsnæðið sitt í september þegar leigusalinn hennar þurfti óvænt að flytja inn. Hún hafi strax byrjað að leita og verið á lista hjá borginni um að fá félagslegt húsnæði. Lagði hún áherslu á að komast að hjá Ellunni, sem er úrræði fyrir einstæðar mæður með sérþarfir.

Hún hafi verið búin að fá samþykkta leiguíbúð á almenna markaðinum en hætt við hana eftir samtal við ráðgjafa hjá Ellunni í nóvember. Segist Birta að ráðgjafi hafi gefið henni mikla von um að fá íbúð þar strax í desember.

En það hefur ekki raungerst.

Sjá einnig:

Birta Blanco sendir neyðarkall – Missa húsnæðið rétt fyrir jólin

„Íbúðin losnar í byrjun desember og þurfti ég að flytja út í byrjun janúar. Nú situr allt innbúið í geymslu síðan þá og hef ég ekki fengið nein svör um þessa íbúð. Bara að hún er í vinnslu,“ segir Birta við Mannlíf.

Það síðasta sem hún heyrði var að ekkert væri öruggt varðandi þessa íbúð. Það væri hægt að mæla með henni en ekki lofa.

Segist Birta vera illa svikin af borginni. „Ég get ekki ímyndað mér hversu margar mæður eru á okkar landi sem falla svona á milli eins og ég og láta sig bara hafa það af því þær halda að Reykjavíkurborg/féló hafa þeirra hagsmuni í huga. Raunin er bara allt önnur,“ segir hún.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Hver bjargar jólunum í Borgarleikhúsinu?

Hver bjargar jólunum í Borgarleikhúsinu?
Fókus
Fyrir 4 dögum

Hafdís Björg opnar sig upp á gátt: „Ég var hræddari við kommentakerfið en ofbeldismanneskjuna“

Hafdís Björg opnar sig upp á gátt: „Ég var hræddari við kommentakerfið en ofbeldismanneskjuna“
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Ég er ekki að fara að taka yfir heiminn – ég er hér til að hjálpa“

„Ég er ekki að fara að taka yfir heiminn – ég er hér til að hjálpa“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Laufey sýnir á sér nýja hlið – „Lyktar eins og heima“

Laufey sýnir á sér nýja hlið – „Lyktar eins og heima“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Kyntákn tíunda áratugarins hraðspólar kynlífssenur nútímans – Þetta er ástæðan

Kyntákn tíunda áratugarins hraðspólar kynlífssenur nútímans – Þetta er ástæðan
Fókus
Fyrir 6 dögum

Barnastjarnan úr Little Miss Sunshine orðin þrítug – lífið eftir frægðina var erfitt

Barnastjarnan úr Little Miss Sunshine orðin þrítug – lífið eftir frægðina var erfitt
Fókus
Fyrir 6 dögum

„Á myrkustu stundunum náði sú hugsun í gegn að ég á þrjú börn og ég veit að þau elska mig“

„Á myrkustu stundunum náði sú hugsun í gegn að ég á þrjú börn og ég veit að þau elska mig“
Fókus
Fyrir 1 viku

Þetta eru lögin sem kemur fólki á óvart að séu íslensk

Þetta eru lögin sem kemur fólki á óvart að séu íslensk
Fókus
Fyrir 1 viku

Patrekur ákvað að hætta að drekka þegar hann sá sjálfan sig: „Ég gat ekki horft á þetta. Mér fannst þetta svo hrikalegt“

Patrekur ákvað að hætta að drekka þegar hann sá sjálfan sig: „Ég gat ekki horft á þetta. Mér fannst þetta svo hrikalegt“