
Marianna komst í kast við lögin og var hún árið 2012 dæmd í sjö ára fangelsi fyrir aðkomu sína að svikamáli, samkvæmt umfjöllun rússnesku fréttamiðlanna Komsomolskaya Pravda og Izvestia.
Eftir að dómur féll hvarf Marianna hins vegar sporlaust og var hún síðar talin látin. En lögregla telur að hún hafi látið sig hverfa og sviðsett dauða sinn með aðstoð eiginmanns síns til að komast hjá því að þurfa að afplána dóminn.
Í frétt People kemur fram að Marianna sé talin hafa flúið til Tatarstan sem er sjálfstætt lýðveldi innan Rússneska sambandsríkisins. Þar á hún að hafa skipulagt sviðsetningu á dauða sínum ásamt eiginmanni sínum.
Rannsekendur segja að Marianna hafi fylgst með tilkynningum um týnda einstaklinga og beðið þar til lík konu sem líktist henni fannst. Hún á þá að hafa fengið eiginmann sinn til að bera kennsl á líkið sem hennar eigið.
Að sögn Izvestia vísaði eiginmaðurinn meðal annars til örs eftir keisaraskurð þegar hann bar kennsl á líkið. Hann lagði svo fram dánarvottorð og sá um greftrunina undir nafni eiginkonu sinnar. Með því tókst að sannfæra yfirvöld um að hún væri í raun og veru látin.
Í samtali við Izvestia segir Andrey Hegai, aðstoðarmaður yfirmanns rannsóknardeildar í Astrakhan-héraði, að Marianna hafi á þessum tíma lifað undir nýju auðkenni og notast við ljósrit af vegabréfi annars einstaklings. Það hafi gert yfirvöldum erfitt fyrir að rekja ferðir hennar.
Í frétt People kemur fram að málið hafi komist aftur á dagskrá þegar yfirvöld hófu rannsókn á tveimur morðum sem talin eru tengjast sama svikamáli og leiddi upphaflega til dóms yfir Mariönnu. Við þá rannsókn fundu lögregluyfirvöld hana á heimili sínu, þar sem hún hafði að sögn lifað tiltölulega kyrrlátu lífi.
Myndskeið úr húsleit, sem birt var af miðlinum Nexta, sýnir embættismenn fara yfir skjöl og ræða við konu sem mun vera fyrrnefnd Marianna. Eiginmaður hennar er sagður hafa játað aðild að málinu.
Marianna er nú komin á bak við lás og slá til að afplána dóminn sem hún hlaut árið 2012. Þá eru yfirvöld með það til skoðunar hvort og þá hvernig brugðist verður við þeim brotum sem tengjast sviðsetningunni á dauða hennar.
Disappeared in Russian style — ex-deputy housing minister faked her death and hid for 13 years
Marianna Stupina, former first deputy minister of housing in the Astrakhan region, was sentenced to 7 years for corruption in 2012. After the sentence, she fled to Tatarstan and… pic.twitter.com/baOOH4kDtZ
— NEXTA (@nexta_tv) February 20, 2026