fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Svarar Roy Keane af yfirvegun sem hafa efast um ágæti hans

Hörður Snævar Jónsson
Laugardaginn 21. febrúar 2026 17:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Michael Carrick hefur svarað gagnrýni frá sparkspekingum, þar á meðal fyrrum liðsfélaga sínum hjá Manchester United, Roy Keane, og segir ummælin ekki hafa nein áhrif á sig.

Keane lét ummæli falla þegar Carrick var ráðinn tímabundið við stjórnvölinn hjá United í janúar. Hann kallaði félagið „sirkus“ og benti á að Carrick hefði ekki náð að koma Middlesbrough upp um deild, sem hann taldi merki um misheppnað verkefni.

Carrick, sem er 44 ára, tók við liðinu eftir að Ruben Amorim lét af störfum og hefur síðan þurft að takast á við mikla umræðu í fjölmiðlum.

Í samtali við BBC Sport sagði Carrick að hann tæki gagnrýninni af yfirvegun. „Þetta hefur engin áhrif á mig. Ég ætla ekki að fara í einhverjar deilur út af þessu,“ sagði hann.

Hann lagði áherslu á að virðing skipti máli í umræðunni og að mikilvægt væri að styðja við yngri leikmenn sem gætu átt erfiðara með slíka gagnrýni.

„Fótboltinn er orðinn allt annar en þegar ég var að byrja, en við þurfum að passa upp á leikmennina okkar,“ bætti Carrick við.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn