
Julian Alvarez er til í að hafna enskum stórliðum í sumar fyrir Barcelona.
Spænska blaðið Sport segir frá þessu, en argentíski sóknarmaðurinn hefur verið orðaður frá Atletico Madrid undanfarið, hvar hann er á sínu öðru tímabili.
Þessi fyrrum leikmaður Manchester City hefur verið orðaður við nokkur ensk stórlið, helst Arsenal, Chelsea og Manchester United, en vill fara til Barcelona í sumar ef það stendur til boða.
Talið er að Robert Lewandowski fari frá Börsungum í sumar og hefur fjöldi framherja verið orðaður við félagið til að fylla hans skarð.