fbpx
Miðvikudagur 18.febrúar 2026
Fókus

Dánarorsök dótturinnar opinberuð

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 18. febrúar 2026 14:30

Feðginin Victoria og Tommy Lee Jones

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dánarorsök Victoriu Jones hefur verið opinberuð. Dóttir leikarans Tommy Lee Jones lést vegna eituráhrifa kókaíns, að því er yfirlæknir í San Francisco í Kaliforníu segir í samtali við Page Six. Andlát hennar er úrskurðað sem slys.

Victoria fannst meðvitundarlaus snemma á nýársdag á 14. hæð Fairmont San Francisco hótelsins í Kaliforníu.

„Við erum afar sorgmædd vegna atviks sem átti sér stað á hótelinu 1. janúar 2026,“ sagði fulltrúi hótelsins í yfirlýsingu. „Innilegar samúðarkveðjur okkar til fjölskyldu og ástvina á þessum erfiðu tímum. Starfsfólk hótelsins vinnur með lögreglu við rannsóknina.“

Í fyrstu taldi einstaklingurinn sem kom að Victoriu að hún hefði dáið áfengisdauða og gerði hann starfsfólki hótelsins viðvart. Eftir að sjúkraflutningamenn voru kallaðir til um klukkan 2:52 að staðartíma, var Victoria úrskurðuð látin á vettvangi. Hún var 34 ára gömul.

Þann 1. janúar staðfesti talsmaður slökkviliðsins að „viðkomandi hafi verið gefin fyrirmæli um endurlífgun samkvæmt CAD-skrám.“ Lögreglan í San Francisco sagðist hafa  komið á hótelið klukkan 3:14 að morgni. Lögreglan sagði þá að enginn grunur væri um saknæmt athæfi og engin fíkniefnaáhöld fundust á vettvangi. Ekkert benti heldur til þess að Victoria hefði tekið eigið líf.

Það er óljóst hvort Victoria var gestur á hótelinu eða hvernig hún komst upp á 14. hæðina.

Victoria átti lítið hlutverk  í mynd föður síns, Men In Black II og The Three Burials of Melquiades Estrada árið 2005 og The Homesman árið 2014. Þótt hún hafi hætt við feril í Hollywood mætti hún oft með föður sínum á rauða dregilinn.

Victoria komst nokkrum sinnum í kast við lögin, var hún handtekin að minnsta kosti tvisvar árið 2025. Í apríl var hún handtekin fyrir að hindra lögregluþjón, nota/vera undir áhrifum fíkniefna og hafa fíkniefni í fórum sínum, en neitaði sök. Hún var handtekin aftur í júní fyrir heimilisofbeldi og eldri borgaraofbeldi, en neitaði sök. Að auki var Victoria handtekin fyrir þjófnað á 50 til 500 dölum í San Antonio í Texas í júní 2011. Ákærunni var síðar vísað frá.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Leiklistarhjón selja á Laugarásvegi

Leiklistarhjón selja á Laugarásvegi
Fókus
Fyrir 2 dögum

Barátta Davíðs og Golíat – Vogue lögsækir lítið hundatímarit

Barátta Davíðs og Golíat – Vogue lögsækir lítið hundatímarit
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Ég ferðast ein – Þetta er aðferðin til að fá ókeypis mat, drykki og leiðsögn í öllum löndum sem ég heimsæki“

„Ég ferðast ein – Þetta er aðferðin til að fá ókeypis mat, drykki og leiðsögn í öllum löndum sem ég heimsæki“
Fókus
Fyrir 4 dögum

66°Norður opnar Archive verslun í Kaupmannahöfn

66°Norður opnar Archive verslun í Kaupmannahöfn
Fókus
Fyrir 5 dögum

Löðrungaði barnsföðurinn eftir niðurlægjandi útspil sem átti að vera rómantískt

Löðrungaði barnsföðurinn eftir niðurlægjandi útspil sem átti að vera rómantískt
Fókus
Fyrir 5 dögum

Myndband fangar stemninguna á Íslandsmótinu í ólympískum lyftingum

Myndband fangar stemninguna á Íslandsmótinu í ólympískum lyftingum