fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Fókus

Alexandra Helga lokar Míu

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 11. febrúar 2026 14:39

Alexandra Helga Ívarsdóttir. Mynd: Instagram.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Alexandra Helga Ívarsdóttir hefur ákveðið að loka barnafataverslun sinni Míu. Verslunina opnaði hún árið 2022 með vinkonu sinni Móeiði Lárusdóttur, en síðar tók Alexandra Helga alfarið yfir reksturinn.

Alexandra Helga tilkynnti um lokunina á samfélagsmiðlum.

„Eftir þó nokkra yfirlegu og umhugsun hef ég ákveðið að komið sé að leiðarlokum í einu skemmtilegasta ferðalagi sem ég hef farið í. Verslunin mín Mía mun því loka á næstu vikum.

Mía hefur verið „þriðja barnið“ mitt allt frá því hún opnaði sem netverslun árið 2022 og síðar sem glæsilega verslun í Ármúla 40. Þó að verslunarrekstur sé gefandi og skemmtilegur þá er hann á sama tíma krefjandi og nú hef ég ákveðið að snúa mér að öðrum verkefnum ásamt því að gefa hinum tveimur börnunum mínum meiri tíma og athygli. 

Á þessu ferðalagi hef ég verið svo lánsöm að kynnast yndislegum hópi viðskiptavina, frábæru starfsfólki, faglegum og flottum birgjum og fleiri aðilum sem með einum eða öðrum hætti lögðu lóð sín á vogarskálarnar í rekstri Míu. Öllu þessu fólki færi ég mínar allra bestu þakkir fyrir samfylgdina og samstarfið.“

Verslunin hefur selt barnaföt, barnavörur, leikföng, húsgögn og meðgönguvörur frá merkjunum American Vintage, Donsje, Joolz, Lillelam, Nobodinoz, Plan Toys og fleirum. Rýmingarsala stendur nú yfir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 6 dögum

Ragnhildur Alda María flytur sig um set

Ragnhildur Alda María flytur sig um set
Fókus
Fyrir 6 dögum

„Á myrkustu stundunum náði sú hugsun í gegn að ég á þrjú börn og ég veit að þau elska mig“

„Á myrkustu stundunum náði sú hugsun í gegn að ég á þrjú börn og ég veit að þau elska mig“
Fókus
Fyrir 1 viku

Nýtt lag frá Fussumsvei: „Skattheimtumennirnir“ – Fjörugt og hrátt rokk

Nýtt lag frá Fussumsvei: „Skattheimtumennirnir“ – Fjörugt og hrátt rokk
Fókus
Fyrir 1 viku

Yfirgaf eiginmanninn fyrir „draumaprinsinn“ en ekki var allt sem sýndist

Yfirgaf eiginmanninn fyrir „draumaprinsinn“ en ekki var allt sem sýndist