fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Umdeildi sjónvarpsmaðurinn tjáir sig um áform sín – Yfirgaf eiginkonu sína til 36 ára til að vera með dóttur vinkonu sinnar

433
Þriðjudaginn 10. febrúar 2026 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sjónvarpsmaðurinn Richard Keys hefur brugðist við fregnum þess efnis að hann hyggist hætta alfarið í íþróttaútsendingum eftir brotthvarf sitt frá beIN Sports að loknu tímabili í vor.

Keys, sem er 68 ára, staðfesti nýverið að samningur hans í Katar myndi renna út í sumar og að hann yrði ekki framlengdur. Hann flytur því aftur til Bretlands.

Keys gekk til liðs við beIN Sports árið 2013 ásamt Andy Gray, eftir að þeir yfirgáfu Sky Sports árið 2011 í kjölfar leka á upptöku þar sem þeir létu niðrandi orð falla um kvenkyns aðstoðardómara. Síðan þá hafa þeir verið andlit ensku úrvalsdeildarinnar og Meistaradeildarinnar í 24 löndum í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku.

Í bloggfærslu sagði Keys að tími væri kominn til að taka næsta skref. Sagðist hann þá hvorki vera hættur né að hann sé að yfirgefa beIN vegna ágreinings. „Ég er ekki að hætta, bara að breyta um stefnu. Það er mikið eftir,“ skrifaði hann.

Samkvæmt The Telegraph munu bæði Keys og Gray yfirgefa stöðina í maí 2026, þar sem beIN hyggst endurnýja hóp sinn. Keys hyggst flytja aftur til Bretlands og setjast þar að með eiginkonu sinni, Lucie Rose, eftir en þau hafa verið í sitt hvoru landinu í fjölda ára.

Keys og Rose giftust fyrir tveimur árum, það vakti mikla athygli þegar samband þeirra hófst 2016. Keys hélt framhjá eiginkonu sinni til 36 ára til að vera með Rose, sem er 32 árum yngri en hann. Hún var jafnframt vinkona dóttur hans. Fór þetta eðlilega öfugt ofan í marga.

Meira
Giftist konu sem er 32 árum yngri – Hún er vinkona dóttur hans og hann hélt framhjá eiginkonu sinni með henni

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Skrifa ótrúlega sögu í Íslendingabænum

Skrifa ótrúlega sögu í Íslendingabænum