fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Buffaður á heimili sínu eftir að hann kom úr skápnum – Lögreglan hafði sagt honum að hlusta ekki á hótanir

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 9. febrúar 2026 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þýski dómarinn Pascal Kaiser varð fyrir árás á heimili sínu skömmu eftir að hafa vakið mikla athygli fyrir bónorð til kærasta síns á knattspyrnuleik í Köln, samkvæmt erlendum miðlum.

Kaiser, sem dæmir áhugamannaleiki, fór á dögunum í dreifingu á samfélagsmiðlum þegar hann bað kærasta sinn, Moritz, um að giftast sér á leik Köln og Wolfsburg fyrir framan um 50 þúsund áhorfendur á RheinEnergie-leikvanginum. Félagið birti myndband af bónorðinu og studdi framtakið.

Í færslu Kölnar sagði meðal annars að Kaiser væri dómari, mikill stuðningsmaður félagsins og væri samkynhneigður. Bónorðið var skipulagt með stuðningi félagsins. Kaiser sagði sjálfur í hljóðnema á vellinum. „Ég vil ekki fela mig. Ég vil vera sýnilegur. Ég vil að allir sjái að ég elska þessa manneskju. Karlmaður í fótbolta. Viltu giftast mér?“

Dagurinn endaði fullkomlega fyrir Kaiser þar sem Köln vann 1-0 sigur.

Samkvæmt franska miðlinum L’Equipe fékk Kaiser síðar hótanir þar sem vísað var til heimilisfangs hans. Hann hafði samband við lögreglu vegna málsins og lýsti áhyggjum sínum, en á að hafa fengið þau svör að engin hætta væri á ferðum.

Stuttu síðar, eða um tuttugu mínútum eftir símtalið, var hann að sögn ráðist á hann í garði heima hjá sér af þremur mönnum þegar hann var úti að reykja. Kaiser telur að árásin tengist bónorðinu.

Hann birti síðar mynd af marbletti við auga á samfélagsmiðlum. Kaiser var áður knattspyrnumaður og hefur dæmt leiki á lægra stigum í rúman áratug. Málið hefur vakið mikla athygli og umræður í Þýskalandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“