fbpx
Miðvikudagur 13.maí 2026
433Sport

Sveinn Aron sagður vera á leið til Ítalíu

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 27. janúar 2026 13:00

Sveinn Aron Guðjohnsen. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sveinn Aron Guðjohnsen er á leið aftur til Ítalíu eftir að hafa náð samkomulagi um persónulega samningsskilmála við ítalska félagið Cavese. Samningurinn gildir í sex mánuði og mun íslenski sóknarmaðurinn því ljúka tímabilinu á Ítalíu.

Sveinn Aron hefur áður leikið í ítalskri knattspyrnu og þekkir því vel til aðstæðna þar. Cavese, sem leikur í C-deild þar í landi vonast til að Sveinn geti komið með mörk inn í liðið.

Sveinn Aron rifti samningi sínum við Sarpsborg 08 í Noregi í gær og samkvæmt fréttum á Ítalíu er hann á leið í nýtt félag.

Framherjinn knái var leikmaður Spezia frá 2018 til 2021 og var á þeim tíma meðal annars lánaður til Ravenna.

Cavese er um miðja deild í C-deildinni en á möguleika á því að komast í umspil. Sveinn Aron er 27 ára gamall og hefur spilað tuttugu landsleiki fyrir Ísland.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Besta deildin áfram á Sýn á næsta ári

Besta deildin áfram á Sýn á næsta ári
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Liverpool alvarlega að íhuga sölu í sumar

Liverpool alvarlega að íhuga sölu í sumar
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Samfélagið slegið eftir skyndilegt fráfall – Var ungur og framúrskarandi einstaklingur

Samfélagið slegið eftir skyndilegt fráfall – Var ungur og framúrskarandi einstaklingur
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Liverpool skoðar tvo leikmenn Monaco en fá samkeppni

Liverpool skoðar tvo leikmenn Monaco en fá samkeppni
433Sport
Í gær

Barcelona svarar svakalegum ásökunum forseta Real Madrid í dag

Barcelona svarar svakalegum ásökunum forseta Real Madrid í dag
433Sport
Í gær

Myrti barnsmóður sína á hrottalegan hátt og gaf hundum líkamsleifarnar – Fékk svo að ganga frjáls á ný

Myrti barnsmóður sína á hrottalegan hátt og gaf hundum líkamsleifarnar – Fékk svo að ganga frjáls á ný