fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
EyjanFastir pennar

Óttar Guðmundsson skrifar: Foringjakreppa í flokknum

Eyjan
Laugardaginn 5. júlí 2025 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á tólftu öld var Jón Loftsson Oddaverji valdamesti maður landsins. Hann naut óskoraðs álits bæði meðal samherja og óvina. Jón var fenginn til að leysa flókin deilumál annarra höfðingja þar sem enginn efaðist um vit hans og stjórnkænsku. Hann andaðist 1197 en enginn sona hans var sjálfgefinn arftaki. Oddaverjar voru næstu áratugina foringjalausir en öðrum ættum óx ásmegin. Borgarastyrjöld geisaði í landinu þar sem voldugir höfðingjar herjuðu á ríki hver annars. Hinn ókrýndi sigurvegari þessara átaka var foringi Haukdæla, Gissur Þorvaldsson sem sýndi mikla slægð og forystuhæfileika. Þeir sem töpuðu voru hinir leiðtogalausu Oddaverjar. Sterkir og vægðarlausir foringjar unnu en fagurkerar og sveimhugar eins og Sturla frændi minn Sighvatsson lutu í lægra haldi.

Mér datt þetta í hug á dögunum í foringjakrísunni sem ríkir í Sjálfstæðisflokknum. Flokkurinn skipti um leiðtoga eftir mikil átök en þess sjást engin merki. Nýi foringinn hefur haldið sig til hlés vegna utanlandsferða og anna í einkalífinu. Í viðtölum hefur hún lítið til málanna að leggja og sýnir ekki af sér þá röggsemi sem sagan krefst af foringjum flokksins. Nýlega var hún spurð um lélegt gengi í skoðanakönnunum og hvernig hún ætlaði að endurheimta horfið fylgi. Hún svaraði í innantómum frösum og bætti því við að lítið mark væri takandi á slíkum talnaleikjum.

Þetta minnir á síðustu orrustu Sturlu frænda míns á Örlygsstöðum 1238. Hann vaknaði kófsveittur í Miklabæ og hafði dreymt illa um nóttina. Í stað þess að vígbúast og hvetja menn sína til dáða tautaði hann niður í barm sér: „Ekki er mark takandi á draumum.“ Hann gekk til kirkju til að sinna einkaerindum. Þegar orrustan hófst var Sturlungaherinn á engan hátt tilbúinn enda féll Sturla frændi og með honum mikið mannval. Hann missti af bardaganum vegna óákveðni og ákvarðanafælni. Guðrún sjálfstæðisforingi er að detta í sama pyttinn. Hin pólitísku átök standa sem hæst en hún er enn ekki mætt til leiks.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Engin dýrtíð á Vopnafirði – allt skrifað

Þorsteinn Pálsson skrifar: Engin dýrtíð á Vopnafirði – allt skrifað
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Búa tvær þjóðir í landinu okkar?

Thomas Möller skrifar: Búa tvær þjóðir í landinu okkar?
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Sigmundur Ernir skrifar: Slíta ber tengslin við Ísrael

Sigmundur Ernir skrifar: Slíta ber tengslin við Ísrael
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Nútímamegrun

Óttar Guðmundsson skrifar: Nútímamegrun
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Sigmundur Ernir skrifar: Stóra spurningin er hvort við gætum haft það betra

Sigmundur Ernir skrifar: Stóra spurningin er hvort við gætum haft það betra
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Innganga nýrra ríkja í ESB

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Innganga nýrra ríkja í ESB
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Thomas Möller skrifar: Með eða á móti ESB – hver hefur rétt fyrir sér?

Thomas Möller skrifar: Með eða á móti ESB – hver hefur rétt fyrir sér?
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Björn Jón skrifar: Málfarspistill

Björn Jón skrifar: Málfarspistill
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 vikum
Jón Gnarr skrifar: Frelsi