fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
EyjanFastir pennar

Óttar Guðmundsson skrifar: Alltaf Framari

Eyjan
Laugardaginn 30. maí 2026 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margar sárar æskuminningar tengjast knattspyrnuæfingum hjá Fram fyrir neðan gamla Sjómannaskólann. Ég var svo lélegur í fótbolta að ég lenti alltaf í ruslflokknum sem enginn vildi hafa í liði með sér. Sjálfan langaði mig til að vera hluti af glæstu bláklæddu strákaliði sem stillti sér upp með bikar á mynd í Mogganum. En það átti ekki fyrir mér að liggja. Æfingunni lauk áður en hún byrjaði. Ég var sendur heim en hinir fóru að spila fótbolta.

Í gagnfræðaskóla var ég bekkjarfélagi fótboltadrengs úr Val. Hann var sonarsonur Eldeyjar-Hjalta sem var íslensk þjóðhetja. Ég hugsaði: „Af hverju á ég enga svona forfeður sem fæðast miklir íþróttamenn og skila því áfram til afkomenda sinna?“

Þrátt fyrir þessi áföll sem tengdust Fram leit ég alltaf á mig sem Framara og límdi merki félagsins á afturrúðu bílanna sem ég átti úti í Svíþjóð. Maður getur skipt um konu en það er ekki hægt að skipta um fótboltalið.

Ég fylgdist alltaf með félaginu af hlýhug þótt ég vissi ekki lengur hvar höfuðstöðvarnar væru. Fyrir mörgum árum var ég fenginn til að halda hátíðarræðu á Þorrablóti Framara. Ég hitti aftur gamla kvalara eða félaga frá því forðum. Þeir voru kátir og feitir og mundu óljóst eftir mér. „Þú ert allavega betri ræðumaður en fótboltamaður,“ sagði einn þeirra. „Mikið djöfull varstu alltaf lélegur,“ sagði annar hlæjandi. Ég lagði í ræðunni áherslu á uppeldisgildi fótboltans. „Á Framvellinum átti ég mín glæstustu augnablik og sárustu ósigra,“ sagði ég og uppskar lófaklapp. Á þessari stundu fann ég fyrir einhverri tengingu sem ég var búinn að leita að í áratugi. Eftir borðhald og ræðu reyndi ég að að spjalla við aðra gesti en enginn hafði áhuga á mér. Ég var ekki hluti af liðinu og gat því ekki rifjað upp nein sameiginleg afrek. Þegar klukkan var farin að ganga ellefu laumaði ég mér heim. Mér leið eins og forðum þegar ég gekk niður Nóatúnið á leið frá Framvellinum einn á ferð. Það átti bara ekki fyrir mér að liggja að komast í þetta lið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Samstarf Bandaríkjanna og ESB-ríkja í öryggis- og varnarmálum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Samstarf Bandaríkjanna og ESB-ríkja í öryggis- og varnarmálum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Það er bara eitt vopn gegn loforðaverðbólgunni

Þorsteinn Pálsson skrifar: Það er bara eitt vopn gegn loforðaverðbólgunni
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Kosninganótt

Óttar Guðmundsson skrifar: Kosninganótt
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir: Hræðsluáróður gegn aðildarviðræðum

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir: Hræðsluáróður gegn aðildarviðræðum
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Hægri kratar og X-D kunningjar

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Hægri kratar og X-D kunningjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Sigmundur Ernir skrifar: Forðumst einkavinavæðingu íhaldsins

Sigmundur Ernir skrifar: Forðumst einkavinavæðingu íhaldsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Loforðaverðbólga

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Loforðaverðbólga
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Húsaleigulögin eru torf

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Húsaleigulögin eru torf