fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
EyjanFastir pennar

Nína Richter skrifar: Taktvísir hundar

Eyjan
Föstudaginn 29. maí 2026 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Um daginn sá ég myndband á netinu af sérþjálfuðum lögregluhundum í Madrid við æfingar í hjartahnoði. Þeir voru af einstaklega krúttlegri tegund og varla orðnir fullorðnir. Lögreglumaður lá í gulum sandi sem þyrlaðist upp þegar loðboltinn skoppaði upp og niður af ótrúlegri taktfestu sem ég vissi ekki að fyrirfyndist í hundum.

Hér á Íslandi, í sjávarþorpinu Reykjavík þar sem fjörurnar eru þaktar svörtum sandi, lá kona hins vegar þjáð af túrverkjum. Krampaköstin komu með óreglulegu millibili en þó nógu tíð til að hún lægi í fósturstellingu á rúminu sínu. Konan var eigandi Bingó, fjögurra kílóa smáhunds af tegund sem upphaflega var ræktuð til að gæta heimila og veiða rottur. Það rottuveiðieðli hafði þó greinilega eitthvað skolast til, þrátt fyrir hreinræktun og ættbókarfærslur.

Einhverju sinni hafði silfurgrá rotta mætt til leiks í garðinum. Bingó hnusaði forvitinn af henni og virtist helst halda að þarna væri kominn einhvers konar asnalegur hvolpur. Hann veifaði skottinu og vildi leika. Rottan fraus af skelfingu en lét sig síðan hverfa undir næsta bíl þegar henni varð ljóst að hún yrði ekki étin þann daginn.

En aftur að vesalings túrverkjuðu konunni.

Hún hafði nýlega séð þessi myndbönd af spænsku lögregluhundunum og auðvitað datt henni í hug að Bingó gæti mögulega orðið að einhverju liði. Kannski ekki framkvæmt hjartahnoð, en að minnsta kosti sótt teppi eða sýnt samúð af einhverju tagi. Hún kallaði því aumlega á hundinn í gegnum krampaköstin og fljótlega heyrðist kunnuglegt tifið á parketinu.

Svo birtist lítið trýni og glansandi feldur. Bingó skoppaði upp í rúmið, þefaði örlítið af eiganda sínum og stökk síðan aftur niður.

„Ah, dásamlegt,“ hugsaði konan. „Hann er að sækja eitthvað handa mér.“

Tvær mínútur liðu. Bingó brasaði inni í stofu. Tif á parketi. Smá bras.

„Æ, hvað þetta er sætt,“ hugsaði konan.

Fleiri mínútur liðu. Þetta var hætt að vera sætt og orðið örlítið þreytandi. Í Instagram myndböndunum virtust þessi hjálpsömu gæludýr yfirleitt vinna hraðar og af meiri einurð.

Á endanum gafst konan upp og staulaðist fram í stofu. Þar hafði Bingó fundið Ikea-poka fullan af hreinum þvotti sem átti eftir að brjóta saman, dregið bestu flíkurnar upp á gluggasyllu og búið sér til einstaklega notalegt hreiður með útsýni yfir bílastæðið þegar sjúkraliðið kæmi að sækja hinn deyjandi eiganda.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Samstarf Bandaríkjanna og ESB-ríkja í öryggis- og varnarmálum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Samstarf Bandaríkjanna og ESB-ríkja í öryggis- og varnarmálum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Það er bara eitt vopn gegn loforðaverðbólgunni

Þorsteinn Pálsson skrifar: Það er bara eitt vopn gegn loforðaverðbólgunni
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Kosninganótt

Óttar Guðmundsson skrifar: Kosninganótt
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir: Hræðsluáróður gegn aðildarviðræðum

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir: Hræðsluáróður gegn aðildarviðræðum
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Hægri kratar og X-D kunningjar

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Hægri kratar og X-D kunningjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Sigmundur Ernir skrifar: Forðumst einkavinavæðingu íhaldsins

Sigmundur Ernir skrifar: Forðumst einkavinavæðingu íhaldsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Loforðaverðbólga

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Loforðaverðbólga
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Húsaleigulögin eru torf

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Húsaleigulögin eru torf