fbpx
Fimmtudagur 26.júní 2025
Eyjan

Orðið á götunni: Nýtt kaupaukakerfi í Íslandsbanka ofan á 12 prósenta kauphækkun stjórnenda

Eyjan
Fimmtudaginn 26. júní 2025 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar kröfuhafar gamla Glitnis afhentu íslenska ríkinu Íslandsbanka árið 2016 sem stöðugleikaframlag var tekin sú ákvörðun að afnema kaupaukakerfi stjórnenda bankans en slíkt kerfi hafði verið í bankanum og forvera hans frá því fyrir hrun.

Orðið á götunni er að átök hafi orðið milli stjórnenda bankans og fulltrúa eigandans, íslenska ríkisins, um þetta mál. Stjórnendur vildu ólmir halda í kaupaukakerfið og töldu að verið væri að rýra kjör þeirra, enda hafði kaupaukinn gefið vel af sér fyrir þá í bankanum sem hagnaðist mjög á árunum eftir hrun eftir að hafa tekið við útlánasafni Glitnis á gríðarlega niðurfærðu verði en innheimta reyndist síðan langt umfram væntingar.

Orðið á götunni er að eftir talsvert þras milli stjórnenda og fulltrúa ríkisins hafi niðurstaðan í málinu orðið sú að til að bæta stjórnendum Íslandsbanka kaupaukamissinn yrðu föst laun þeirra hækkuð um 12 prósent.

Ríkið hóf svo að losa hlut sinn í Íslandsbanka árið 2022. Aftur var seldur stór hlutur árið 2023. Sú sala hafði þau eftirmál að umboðsmaður Alþingis komst að þeirri niðurstöðu að Bjarni Benediktsson, þáverandi fjármálaráðherra, hefði verið vanhæfur til að hafa yfirumsjón með henni. Í kjölfarið vék Bjarni úr embætti fjármálaráðherra og einnig þurfti Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka að víkja úr starfi, auk þess sem bankinn fékk hæstu sekt sem Fjármálaeftirlitið hefur beitt fyrir sinn þátt í sölu hlutanna.

Í maí sl. seldi ríkið svo eftirstandandi hlut sinn í bankanum í vel heppnuðu útboði þar sem mikill fjöldi almennra fjárfesta eignaðist hlut í bankanum. Eignarhald á bankanum er því mjög dreift en eins og í öðrum félögum sem skráð eru í íslensku kauphöllinni eru lífeyrissjóðir mjög ráðandi í hluthafahópnum og t.a.m. eru þrír stærstu hluthafarnir Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, Gildi lífeyrissjóður og Lífeyrissjóður verslunarmanna. Saman fara þessir þrír sjóðir með 21 prósent hlutafjár bankans.

Nú hefur stjórn bankans boðað til hluthafafundar í Íslandsbanka 30. júní nk. þar sem tekin verður fyrir tillaga um innleiðingu nýs kaupaukakerfis. Lagt er til að það starfsfólk sem mest áhrif getur haft á rekstur og tekjur bankans eigi rétt á kaupauka sem nemur allt að 25 prósentum af árslaunum þess og að árlegur kostnaður vegna kaupaukans geti numið allt að 10 prósentum af heildar launakostnaði bankans. Þessu til viðbótar vill stjórnin samþykkja kaupréttaráætlun fyrir starfsfólk bankans sem talið er að muni kosta bankann allt að 2,5 prósent af heildar launakostnaði.

Orðið á götunni er að það sé athyglisvert að kaupauka- og kaupréttarkerfið sem stjórn Íslandsbanka leggur til hljómi upp á nánast sömu prósentu og kauphækkunin sem stjórnendur bankans eru sagðir hafa fengið þegar síðasta kaupaukakerfi var lagt niður 2016. Einnig sé það athyglisvert að hvergi í tillögum stjórnarinnar sé gert ráð fyrir því að 12 prósent kauphækkunin gangi til baka nú, þegar aftur á að innleiða kaupaukakerfi upp á gamla mátann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt