Fréttalesari íranska ríkissjónvarpsins, Mehdi Khanalizadeh, varaði við því í morgun að allt að 50 þúsund bandarískir hermenn verði sendir heim til Washington í líkkistum.
Þetta gerði hann eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti því yfir að hann vildi sjá stjórnarskipti í Teheran.
Íranir hafa varað við „miklum afleiðingum“ af árás Bandaríkjamanna og þátttaka þeirra í stríðinu gegn Ísrael hafi nú „víkkað út svið réttmætra skotmarka“ sem gefur til kynna að hugsanlega verði reynt að ráðast á bandarískar herstöðvar í nágrannaríkjum Írans.
Bandarískir hermenn í Mið-Austurlöndum eru sagðir vera í viðbragðsstöðu en talið er að um 40 þúsund bandarískir hermenn séu í bandarískum herstöðvum í ríkjum á borð við Barein, Írak, Egyptalandi, Ísrael, Jórdaníu, Kúveit og Katar svo nokkur séu nefnd.