fbpx
Sunnudagur 15.júní 2025
Fréttir

Vafasömu ítölsku verktakarnir sem klúðruðu uppbyggingu Kársnesskóla flúnir land – Skorað á forsvarsmanninn að mæta fyrir dóm

Björn Þorfinnsson
Laugardaginn 14. júní 2025 09:00

Húsnæði Kársnesskóla sem var rifið vegna myglu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kópavogsbær hefur farið fram á að félagið Rizzani de Eccher Ísland ehf.  verði tekið til gjaldþrotaskipta. Í auglýsingu í Lögbirtingablaðinu í morgun kemur fram að málið verði tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 3. september næstkomandi og er skorðað á fyrirsvarsmann félagsins, Giancarlo Sam, að mæta fyrir dóm og halda uppi vörnum, ella verði krafan tekin til greina.

Óvíst er hvort að nokkur muni láta sjá sig fyrir hönd ítalska félagsins, en um er að ræða dótturfélag samnefnds verktakarisa frá Ítalíu, enda er áskorunin birt í Lögbirtingablaðinu því ekki tókst að koma henni til skila með hefðbundnum leiðum. Heimildir DV herma að allir sem tengjast félaginu séu farnir af landi brott og hyggi ekki á endurkomu.

Sviðinn jörð Ítalanna

Óhætt er að fullyrða að ítalska fyrirtækið skilji eftir sig sviðna jörð hérlendis. Fyrirtækið hóf fyrst starfsemi sína á Íslandi árið 2017 og olli strax usla á byggingarmarkaði hérlendis. Fljótlega fóru að heyrast sögur af því að félagið pressaði niður verð hjá undirverktökum, borgaði seint og að vinnubrögð þess væru slæleg. Var afleiðingin sú að íslenskir iðnaðarmenn og fyrirtæki forðuðst að taka að sér verkefni hjá fyrirtækinu.

Í byrjun árs 2021 var greint frá því að ítalska fyrirtækið hefði unnið útboð á byggingu nýs Kársnesskóla, en sá gamli hafði verið rifinn vegna myglu. Sex önnur fyrirtæki, öll íslensk, buðu í verkið en Ítalarnir voru lægstir með tilboð upp á 3.2 milljarða króna, naumlega á undan til að mynda Ístaki sem var með 80 milljónum hærra tilboð. Í ljósi orðspors fyrirtækisins urðu íslenskir byggingaverktakar verulega ósáttir við þessa niðurstöðu.

Um var að ræða stærsta útboð sem Kópavogsbærs hafði ráðist í og var um metnaðarfulla framkvæmd að ræða, meðal annars átti skólinn að vera svansvottaður. Áætluð verlok voru í maí 2023.

Stóðu sig í taktvið orðsporið

Ítalarnir hófu verkið og í stuttu máli stóðu þeir sig í takt við orðsporið, hræðilega. Að rúmum tveimur árum liðnum, þegar stutt var í verlok, rifti Kópavogsbær samningnum við fyrirtækið um byggingu Kársnesskóla í ljósi þess að allt var í kaldakoli, vanefndir og umfangsmiklir gallar á byggingunni.

Sú ákvörðun bæjarins fór fyrir gerðardóm og var niðurstaðan sú að riftun samningsins stóðst fyllilega lög og reglur.

Síðan þá er hefur Kópavogsbær stigið kröftuglega inn í verkefnið og látið laga það sem laga þurfti. Ljóst er hins vegar að kostnaðurinn verður mun meiri en upphaflega var gert ráð fyrir og verklok hafa dregist um rúm tvö ár. Þau eru nú áætluð haustið 2025.

Samningurinn var hins vegar líka við ítalska móðurfélagið og hefur bærinn höfðað skaðabótamál ytra  til þess að fá drjúgar skaðabætur frá Giancarlo og félögum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Nettó lýsti eftir bíræfnum þjófi – Netverjar voru ekki lengi að bera kennsl á krúttlega kappann

Nettó lýsti eftir bíræfnum þjófi – Netverjar voru ekki lengi að bera kennsl á krúttlega kappann
Fréttir
Í gær

Hjördís tók smálán til að ná endum saman og er föst í fátæktargildru – „Að glíma við mikla fátækt í kjölfarið og sé ég eftir því í dag“

Hjördís tók smálán til að ná endum saman og er föst í fátæktargildru – „Að glíma við mikla fátækt í kjölfarið og sé ég eftir því í dag“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Læknahjónin ætluðu að hefja nýtt líf – Tóku þessa mynd skömmu fyrir flugtak

Læknahjónin ætluðu að hefja nýtt líf – Tóku þessa mynd skömmu fyrir flugtak
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sat í sæti 11A og var sá eini sem komst lífs af – Bróðir hans í sæti 11 J hvarf í eldhafið

Sat í sæti 11A og var sá eini sem komst lífs af – Bróðir hans í sæti 11 J hvarf í eldhafið
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vanda Sig segir Akureyri vanvirða starfsfólk og unglinga – „Tóku óskiljanlega ákvörðun ekki alls fyrir löngu“

Vanda Sig segir Akureyri vanvirða starfsfólk og unglinga – „Tóku óskiljanlega ákvörðun ekki alls fyrir löngu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Reiði út af Tesla hleðslustöð á Egilsstöðum – Ekkert bólar á nýjum miðbæ sem kynntur var með pompi og prakt

Reiði út af Tesla hleðslustöð á Egilsstöðum – Ekkert bólar á nýjum miðbæ sem kynntur var með pompi og prakt
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Haugafullur þýskur öldungur gerði óskunda á Seyðisfirði

Haugafullur þýskur öldungur gerði óskunda á Seyðisfirði
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kraftaverk í Indlandi: Breskur maður lifði flugslys Air India af og hlaut aðeins minniháttar skrámur

Kraftaverk í Indlandi: Breskur maður lifði flugslys Air India af og hlaut aðeins minniháttar skrámur