fbpx
Þriðjudagur 12.maí 2026
Pressan

Þetta einfalda ráð hata silfurskottur

Pressan
Sunnudaginn 1. júní 2025 07:30

Silfurskottur eru hvimleiðar en meinlausar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þú kveikir ljósið inni í baðherberginu um miðja nótt og viti menn – lítil, silfurlit og glansandi vera skýst yfir gólfið og hverfur bak við klósettið, svona eins og hún þurfi að fela eitthvað.

Svona er heimur silfurskottunnar. Þær eru ekki hættulegar, þær bíta ekki og þær bera ekki sjúkdóma með sér. En þær eru nú hálf ógeðslegar því við tengjum þær ósjálfrátt við raka og jafnvel myglusvepp.

En það þarf ekki að rjúka upp til handa og fóta og hringja í meindýraeyði. Það er nefnilega til einfalt ráð sem silfurskottur hata.

Það sem þarf er lyftiduft og sykur. Flóknara er það ekki.

Þú blandar lyftidufti og sykri í jöfnum hlutföllum. Síðan stráir þú blöndunni í litlar hrúgur þar sem silfurskottur hafa sést, yfirleitt í hornum, með fram gólflistum, undir vaskinum eða fyrir aftan klósettið. Síðan er bara að bíða.

Sykurinn laðar silfurskotturnar til sína en þegar þær éta blönduna, þá bregst lyftiduftið við sýrunni í maga þeirra og búmm! Það verður sprenging, ekki mjög öflug en þó nógu öflug til að drepa silfurskotturnar.

Silfurskottur elska rakt umhverfi á borð við baðherbergi, þvottahús og kjallara. Ef þú vilt gera þeim lífið leitt, þá er bara að halda þessum rýmum þurrum. Loftaðu út, notaðu rakaeyði og þurrkaðu af flísunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Nú þarftu ekki lengur að þefa af handklæðinu – Hér er sannleikurinn um hversu oft á að þvo það

Nú þarftu ekki lengur að þefa af handklæðinu – Hér er sannleikurinn um hversu oft á að þvo það
Pressan
Í gær

Segir að Pútín hafi málað sig út í horn

Segir að Pútín hafi málað sig út í horn
Pressan
Fyrir 2 dögum

Höfuð fjölskyldunnar átti sér dökka hlið – Dökkir skuggar fortíðarinnar

Höfuð fjölskyldunnar átti sér dökka hlið – Dökkir skuggar fortíðarinnar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona lengi er hægt að geyma kjöt í frysti

Svona lengi er hægt að geyma kjöt í frysti
Pressan
Fyrir 2 dögum

Shoigu sagður ógn við Pútín

Shoigu sagður ógn við Pútín
Pressan
Fyrir 2 dögum

Læknir varar við vinsælum morgunmat – Getur verið heilsunni hættulegur

Læknir varar við vinsælum morgunmat – Getur verið heilsunni hættulegur