fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Vill mæta aftur í enska boltann í sumar – Kemur frítt frá Sádí Arabíu

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 14. apríl 2026 08:00

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Georginio Wijnaldum vill snúa aftur í ensku úrvalsdeildina þegar samningur hans við Al Ettifaq rennur út í sumar.

Hollenski miðjumaðurinn, sem er 35 ára, hefur ekki í hyggju að leggja skóna á hilluna og telur sig enn hafa mikið fram að færa. Hann hefur átt gott tímabil í Sádi-Arabíu þar sem hann hefur skorað 14 mörk og lagt upp sex.

Aðalmarkmið hans er að snúa aftur til Englands, þó engin endanleg ákvörðun hafi verið tekin um næsta skref.

Wijnaldum lék áður með Liverpool þar sem hann spilaði 237 leiki og vann bæði ensku úrvalsdeildina og Meistaradeildina. Hann fór þaðan til Paris Saint-Germain árið 2021.

Hann hefur síðustu þrjú ár leikið með Al Ettifaq en gæti nú snúið aftur á stærsta svið enska boltans.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Rekinn korter í HM

Rekinn korter í HM
433Sport
Í gær

Opnar sig um að mjög frægur maður hafi heimtað nektarmynd – Tengdist loforði sem hún hafði gefið

Opnar sig um að mjög frægur maður hafi heimtað nektarmynd – Tengdist loforði sem hún hafði gefið
433Sport
Í gær

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Í gær

Chelsea fær ansi góðar fréttir

Chelsea fær ansi góðar fréttir
433Sport
Fyrir 2 dögum

Svarar fyrir framtíð Mason Mount eftir síðasta leik

Svarar fyrir framtíð Mason Mount eftir síðasta leik
433Sport
Fyrir 2 dögum

Fengu leyfi til að fara á fyllerí í gær – Gæti haft áhrif í fallbaráttu deildarinnar

Fengu leyfi til að fara á fyllerí í gær – Gæti haft áhrif í fallbaráttu deildarinnar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra