fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
433Sport

Þorsteinn ómyrkur í máli og með skýrt ákall til þjóðarinnar – „Ég skal vera hreinskilinn, það eru vonbrigði“

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 14. apríl 2026 22:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari var ánægður með gríðarlega mikilvægan 1-0 sigur á Úkraínu í undankeppni HM í kvöld. Stigin gætu reynst dýrmæt þegar að umspilinu um sæti á mótinu kemur.

„Þetta var mikilvægur sigur og mér fannst við fín í dag. Við sköpuðum mikið af færum, vorum ógnandi í föstum leikatriðum og fannst við hafa góða stjórn á leiknum, sérstaklega í seinni hálfleik.“

Þorsteinn ræddi um leikinn á ítarlegri hátt en var einnig spurður út á mætingu á völlinn í kvöld. Aðeins um tæp 1500 mættu á þennan mikilvæga leik.

„Þeir áhorfendur sem mættu voru frábærir, stóðu sig vel og skiptu okkur máli. Ég skal vera hreinskilinn, það eru vonbrigði því liðið er búið að vera með þeim bestu síðustu 5-6 ár en við náum aldrei einhverjum fjölda á völlinn,“ sagði Þorsteinn.

„England kemur hérna á laugardaginn og mér finnst bara skrýtið ef fólk mætir ekki til að sjá nokkra af bestu leikmönnum heims.“

Þorsteinn segir að það þurfi að ná yngri iðkendum á völlinn í meiri mæli.

„Við erum ekki að fara að sækja aðdáendur á karlaleiki. Við þurfum að búa til aðdáendur úr yngri iðkendum, að það verði þeirra lístíll að mæta á völlinn ef þær eru ekki sjálfar að fara að spila.

Það er skrýtið að horfa kannski upp á knattspyrnudeild sem er með 600 iðkendur í kvennaflokki en það mæta 150 á leik, það er skrýtið.“

Ítarlegt viðtal við Þorstein er í spilaranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Spánverjar skilja margar hetjur eftir heima í sumar

Spánverjar skilja margar hetjur eftir heima í sumar
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Sakar Jamie Carragher um vanvirðingu – Ætlar að kveðja á góðum nótum

Sakar Jamie Carragher um vanvirðingu – Ætlar að kveðja á góðum nótum
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Ítarlegt viðtal við Arnar Gunnlaugs: Spurður út í vonarstjörnu Íslands – „Þeir vita alveg hvar þeir eru í fæðukeðjunni“

Ítarlegt viðtal við Arnar Gunnlaugs: Spurður út í vonarstjörnu Íslands – „Þeir vita alveg hvar þeir eru í fæðukeðjunni“
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Arnar Gunnlaugs útskýrir valið á Ögmundi – Aron Sig var ekki í huga Arnars fyrir leikinn gegn Argentínu

Arnar Gunnlaugs útskýrir valið á Ögmundi – Aron Sig var ekki í huga Arnars fyrir leikinn gegn Argentínu
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Birta samskipti dómara og VAR-herbergisins frá atvikinu í London um helgina – Hlustaðu á það sem gekk á

Birta samskipti dómara og VAR-herbergisins frá atvikinu í London um helgina – Hlustaðu á það sem gekk á
433Sport
Í gær

United horfir til Ítalíu – Verðmiðinn nokkuð viðráðanlegur

United horfir til Ítalíu – Verðmiðinn nokkuð viðráðanlegur
433Sport
Í gær

Treyjur Ronaldo og Beckham seldust á nokkrar milljónir

Treyjur Ronaldo og Beckham seldust á nokkrar milljónir
433Sport
Í gær

Verður hann óvænt arftaki Alisson hjá Liverpool? – Með mikla reynslu úr ensku úrvalsdeildinni

Verður hann óvænt arftaki Alisson hjá Liverpool? – Með mikla reynslu úr ensku úrvalsdeildinni