433

Segir frá myndinni sem varð til þess að hann ákvað að grennast - „Ég var orðinn risastór“

Mynd

Wayne Rooney, fyrrverandi fyrirliði Manchester United og enska landsliðsins, hefur greint frá því hvað varð til þess að hann ákvað að breyta um lífsstíl og taka heilsuna föstum tökum.

Rooney, sem er 41 árs, hefur lést töluvert undanfarna mánuði og vakið athygli fyrir breytt útlit.

Í viðtali við Gabby Logan í hlaðvarpinu Life at the Midpoint sagði Rooney að mynd af honum úr góðgerðarleik Manchester United og Celtic árið 2024 hefði orðið vendipunkturinn.

„Þegar ég sá myndina hugsaði ég með mér að ég yrði að gera eitthvað. Ég var orðinn risastór,“ sagði Rooney, sem var þá orðinn um 112 kíló.

Mynd

Hann segir að börnin hans hafi einnig séð myndina og að hann hafi verið farinn að finna fyrir þreytu í daglegu lífi.

„Ég var orðinn líkamlega þreyttur, meira að segja þegar ég var að fara eitthvað með krakkana. Þá áttaði ég mig á því að ég yrði að breyta einhverju.“

Rooney hóf að æfa af meiri krafti fyrir góðgerðarleik Soccer Aid í sumar og tók jafnframt ákvörðun um að hætta að drekka áfengi.

Hann ræddi einnig opinskátt um erfiðleika sína með áfengi og andlega heilsu á meðan hann var leikmaður United.

„Ég gat lokað mig inni heima í tvo daga og bara drukkið. Þetta var á þeim tíma þegar mér gekk hvað best inni á vellinum,“ sagði Rooney.