

Christian Eriksen miðjumaður danska landsliðsins hneig niður í miðjum leik gegn Úkraínu, nú rétt í þessu. Danska sambandið segir Eriksen með meðvitund eftir atvikið og líða ágætlega eftir atvikum.
Christian Eriksen just collapsed again after clutching his chest horrific to see pic.twitter.com/es8LZvRPVG
— Only Chelsea ⚽️ (@Here4ChelseaFC) June 7, 2026
Fimm ár eru frá því að Eriksen fór í hjartastopp í miðjum leik á Evrópumótinu í knattspyrnu. Hann þurfti að taka sér nokkra mánaða hlé frá fótbolta eftir það.
Eriksen has lost consciousness again in the match against Ukraine and the TV has stopped showing the game.
I hope he’s okay ❤️ pic.twitter.com/yCun5adWjD
— Morgan (@utdscope) June 7, 2026
Þessi magnaði leikmaður komst aftur á fulla ferð og hefur leikið með Brentford, Manchester United og Wolfsburg eftir að hafa komið til baka.
Referee Sigurd Smehus Kringstad blew his whistle and decided to stop the match.
Our thoughts are with you, Eriksen 🇩🇰❤️ pic.twitter.com/mGqGHnoAmc
— Goals Xtra (@GoalsXtra) June 7, 2026
Langt var liðið á síðari hálfleik þegar Eriksen hneig til jarðar, en hann sást halda utan um bringu sínu áður en hann féll til jarðar.
Búið er að flauta leikinn af vegna atviksins en Eriksen er með fulla meðvitund
Eriksen yine bayılmış amk pic.twitter.com/dfKhEsPkGn
— yerli kartelci (@kartelci_FA99) June 7, 2026