
Brighton hefur samið við sænska félagið AIK um kaup á nígeríska kantmanninum Zadok Yohanna.
Brighton greiðir 21,5 milljónir punda fyrir hinn 18 ára gamla Yohanna sem skrifar undir fimm ára samning.
Fabian Hurzeler, stjóri Brighton, segir Yohanna vera spennandi leikmann sem geti haft góð áhrif á sóknarleik liðsins.
„Hann er ungur og þarf tíma til að aðlagast en hann er mjög spennandi leikmaður með mikla sköpunargáfu,“ sagði Hurzeler.
Yohanna kom til AIK frá Ikon Allah-akademíunni í Nígeríu og skoraði fimm mörk ásamt því að leggja upp fjögur í 18 leikjum fyrir sænska félagið.
Hafði hann verið orðaður við fleiri lið, þar á meðal Chelsea, en kappinn fer til Brighton, sem er þekkt fyrir að þróa unga leikmenn.