

Björn Þorfinnsson, fjölmiðlamaður og skákmeistari, og Tómas Steindórsson, útvarpsstjarna og körfuboltasérfræðingur, mættu til Helga Fannars Sigurðssonar í Íþróttavikuna.
Arsenal varð á dögunum Englandsmeistari í fyrsta sinn í 22 ár og spretta stuðningsmenn liðsins upp hér og þar.
„Það er fullt af frægu fólki sem stígur fram, þar á meðal Keir Starmer, forsætisráðherra. Það er smá hiti á honum þessa dagana og hann fékk þann hita beint á sig frá stuðningsmönnum Arsenal og öðrum í kommentakerfum,“ sagði Helgi og hélt áfram.
„Við eigum nóg af umdeildum stuðningsmönnum, þar á meðal Piers Morgan.“
Björn er ekki mikill aðdáandi Morgan og vill ekki fara hátt með að hann styðji Arsenal. Morgan er þó afar virkur í umræðu um félagið.
„Jafnvel þó hann sé að segja eitthvað sem ég er sammála fer hann samt í taugarnar á mér, hvernig hann kemur þessu frá sér,“ sagði hann og hló.
Nánar í spilaranum.