

Love Island-stjarnan Montel McKenzie og svissneska knattspyrnukonan Alisha Lehmann hafa hrint af stað orðrómum um trúlofun sína eftir færslu á Instagram.
Montel birti mynd af parinu saman inni í skartgripaverslun ásamt tjákni (e. emoji) með lás og lykli, sem margir túlkuðu sem vísbendingu um trúlofun.

Parið hefur verið saman í nokkra mánuði en Montel staðfesti sambandið opinberlega í janúar í afmæli Lehmann.
Alisha, sem hefur oft verið kölluð kynþokkafyllsta knattspyrnukona heims, spilar í dag með Como á Ítalíu og auðvitað svissneska landsliðinu.
Samkvæmt heimildum The Sun hafa þau verið mjög náin síðustu mánuði og Montel meðal annars heimsótt hana reglulega á Ítalíu.
Lehmann var áður í sambandi með Douglas Luiz, fyrrum leikmanni Aston Villa, en þau slitu sambandi sínu árið í fyrra.