
Arsenal er samkvæmt miðlinum Teamtalk óvænt að skoða möguleikann á að fá hollenska miðjumanninn Tijjani Reijnders frá Manchester City í sumar.
Reijnders gekk í raðir City frá AC Milan síðasta sumar fyrir um 46,5 milljónir punda en hefur fengið lítið að spila síðustu mánuði undir Pep Guardiola.
Teamtalk segir Arsenal fylgjast grannt með stöðu mála, sérstaklega þar sem óvissa ríkir um framtíð Guardiola og fleiri leikmenn gætu verið á leið frá félaginu.
Reijnders byrjaði tímabilið vel og skoraði fjögur mörk auk þess að leggja upp fimm til viðbótar, en hefur aðeins byrjað einn deildarleik síðan í febrúar.
Arsenal vill styrkja miðjuna fyrir næsta tímabil, en félagið þarf einnig að selja leikmenn í sumar.