fbpx
Föstudagur 22.maí 2026
433Sport

Breiðablik vann KR í níu marka leik – Vandræði FH og Stjörnunnar halda áfram

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 22. maí 2026 21:22

Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þremur leikjum var að ljúka í Bestu deild karla.

Breiðablik vann sannfærandi 6-3 sigur á KR í afar fjörugum leik. Kristófer Ingi Kristinsson skoraði tvö marka Blika, Anton Logi Lúðvíksson, Ágúst Orri Þorsteinsson, Davíð Ingvarsson og Ívar Örn Árnason komust einnig á blað.

Sigurður Breki Kárason minnkaði muninn fyrir KR í 2-1 og 4-2. Amin Cosic skoraði síðasta mark leiksins af vítapunktinum.

Víkingur valtaði yfir FH, 5-0 og eru einir á toppnum eftir kvöldið. Vandræði Hafnfirðinga halda áfram. Elías Már Ómarsson skoraði tvö marka Íslandsmeistaranna og Gunnar Vatnhamar, Gylfi Þór Sigurðsson og Daníel Hafsteinsson eitt.

Það gengur þá lítið upp hjá Stjörnunni, sem tapaði 0-1 gegn Fram á heimavelli. Liðið hefur fengið eitt stig úr síðustu sex leikjum en Framarar eru í frábærum málum í þriðja sæti.

Standings provided by Sofascore
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Guardiola ekki lengi að finna sér nýtt starf – Staðfest að hann muni starfa fyrir eigendur City Football Group

Guardiola ekki lengi að finna sér nýtt starf – Staðfest að hann muni starfa fyrir eigendur City Football Group
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Arne Slot vill lítið gefa upp um það hvort Salah fái að spila um helgina

Arne Slot vill lítið gefa upp um það hvort Salah fái að spila um helgina
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Hilmar Árni tekur til máls eftir að margir í Garðabæ voru sagðir reiðir – „Er í raun svigrúm fyrir það að hugsa öðruvísi?“

Hilmar Árni tekur til máls eftir að margir í Garðabæ voru sagðir reiðir – „Er í raun svigrúm fyrir það að hugsa öðruvísi?“
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Klúðra því að semja við hann vegna njósnahneykslisins

Klúðra því að semja við hann vegna njósnahneykslisins
433Sport
Í gær

Óvissa með Sveindísi og staðan tekin undir lok næstu viku

Óvissa með Sveindísi og staðan tekin undir lok næstu viku
433Sport
Í gær

Ronaldo kláraði titilinn Í Sádí Arabíu – Skoraði tvö í leiknum sem tryggði sigur í deildinni

Ronaldo kláraði titilinn Í Sádí Arabíu – Skoraði tvö í leiknum sem tryggði sigur í deildinni