

Arne Slot segir að allt hafi verið með eðlilegum hætti á æfingasvæði Liverpool þrátt fyrir umdeild ummæli Mohamed Salah um leikstíl liðsins.
Salah vakti mikla athygli eftir tap Liverpool gegn Aston Villa þegar hann skrifaði á samfélagsmiðla að hann vildi sjá félagið snúa aftur í „heavy metal football“, sem margir túlkuðu sem beina vísun í leikstíl Jurgen Klopp.
Færslan vakti enn meiri umræðu þegar tólf leikmenn Liverpool líkaði við hana á samfélagsmiðlum.
Slot sagðist þó ekki telja að Salah hefði grafið undan sér með ummælunum. „Það eina sem ég sé er hvernig leikmennirnir æfa og ég hef ekki séð neina breytingu. Strákarnir hafa æft mjög vel,“ sagði hollenski stjórinn.
Hann sagði jafnframt að bæði hann og Salah vildu það sama fyrir félagið. „Mo var mjög ánægður með leikstílinn okkar þegar við unnum deildina á síðasta tímabili. Fótboltinn þróast stöðugt og við viljum báðir að Liverpool berjist um titla.“
Liverpool þarf aðeins eitt stig gegn Brentford í lokaumferðinni til að tryggja sér sæti í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili.
Slot viðurkenndi að Meistaradeildarsæti skipti miklu máli fyrir sumaráætlanir félagsins, sérstaklega þar sem bæði Salah og Andy Robertson eru á leið frá félaginu.
Þá staðfesti Slot einnig að Alexander Isak ætti að geta æft á föstudag eftir minni háttar meiðslavandræði.