

Nýr auðkýfingalisti Sunday Times hefur verið birtur og þar kemur fram hverjir eru ríkustu íþróttatengdu einstaklingar Bretlands. David Beckham og eiginkona hans Victoria Beckham hafa safnað saman gífurlegum auðæfum sem nema yfir einum milljarði punda, en það dugði þó ekki til að toppa listann.
Fyrrum Formúlu 1-forstjórinn Bernie Ecclestone situr áfram á toppnum eftir að hafa byggt upp gríðarleg auðæfi í kringum Formúlu 1 og sölu mótaraðarinnar til Liberty Media fyrir um áratug.
Á listanum eru einnig stór nöfn á borð við Tyson Fury, Lewis Hamilton og Andy Murray. Sameiginlegt með flestum þeirra er að tekjurnar koma ekki eingöngu frá íþróttunum sjálfum heldur einnig öflugum viðskiptasamningum og fjárfestingum.
David Beckham hefur til dæmis byggt upp öflugt vörumerki eftir ferilinn og á meðal annars hlut í Inter Miami í MLS-deildinni. Victoria Beckham hefur einnig náð miklum árangri í tískuheiminum.
Listinn sýnir hversu stór viðskiptaheimur hefur skapast í kringum afreksíþróttafólk síðustu ár.
Topp tíu listinn
1. Bernie Ecclestone og fjölskylda: £2billion
2. Sir David og Victoria Beckham: £1.185bn
3, Barry og Eddie Hearn: £1.035bn
4. Ben Francis: £800million
5. Sir Lewis Hamilton: £435m
6. Tom og Phil Beahon: £350m
7. Rory McIlroy: £325m
8. Anthony Joshua: £240m
9. Tyson Fury: £162m
10 = Harry Kane: £110m
10 = Sir Andy Murray: £110m