

Jamie Carragher hefur viðurkennt að hörð gagnrýni hans á Casemiro árið 2024 hafi verið of gróf og að ummælin hafi ekki elst vel eftir endurkomu Brasilíumannsins hjá Manchester United.
Carragher lét eftirminnileg orð falla eftir 3-0 tap United gegn Crystal Palace á síðasta ári þegar hann sagði að Casemiro ætti að „hætta áður en fótboltinn hætti með hann“. Þá sagði hann einnig að „fótboltinn hefði yfirgefið hann“.
Casemiro svaraði gagnrýninni nýlega í viðtali þar sem hann kallaði orð Carragher óvirðingu. Nú hefur fyrrum varnarmaður Liverpool brugðist við í pistli sínum hjá Telegraph.
Carragher segir að ummælin hafi verið „of hörð og ótímabær“, þó hann telji að þau hafi ekki verið umdeild á þeim tíma miðað við frammistöðu miðjumannsins.
„Árið 2024 var Casemiro ekki í nægilega góðu formi og átti erfitt með hraða og kraft andstæðinga,“ skrifaði Carragher.
Hann bætti við að gagnrýnin hefði aldrei verið persónuleg heldur byggð á þeim gæðum sem Casemiro sýndi á sínum tíma hjá Real Madrid þar sem hann vann meðal annars fimm Meistaradeildir.
Casemiro hefur hins vegar snúið stöðunni sér í vil á þessu tímabili. Hinn 34 ára gamli miðjumaður hefur átt stóran þátt í að Manchester United tryggði sér sæti í Meistaradeildinni á ný og skorað níu mörk í deildinni.
Carragher viðurkennir að Brasilíumaðurinn hafi þaggað niður í mörgum gagnrýnendum sínum með frammistöðu sinni á tímabilinu.