
Afar vond tíðindi hafa borist frá Víkingi, en markvörður liðsins hefur greinst með illkynja krabbamein og er á leið í lyfjameðferð.
Ingvar hefur verið einn besti markvörður íslenska boltans um árabil og einnig leikið erlendis og með landsliðinu. Víkingur mun styðja þétt við bakið á honum í baráttu við meinið.
Tilkynning Víkings
Kæru Víkingar. Það er okkur afar þungbært að greina frá því að okkar allra besti Ingvar Jónsson, aðalmarkvörður Víkinga, hefur greinst með illkynja krabbamein og er nú á leið í lyfjameðferð við meininu.
Víkingur mun styðja þétt við bakið á Ingvari og fjölskyldu hans í þessu erfiða verkefni og erum við þess fullviss um að hann hafi sigur að lokum, enda fæddur sigurvegari.
Víkingur og fjölskylda Ingvars óska eftir því að fjölmiðlar sýni Ingvari og fjölskyldu skilning á þessum erfiðu tímum og veiti þeim svigrúm og næði til að takast á við verkefnið framundan.
Virðingarfyllst,
Víkingur