

Manchester City hélt lífi í titilbaráttunni með öruggum 3-0 sigri á Crystal Palace.
City var með yfirhöndina frá upphafi og skoraði tvö mörk fyrir hlé. Antoine Semenyo kom liðinu yfir á 32. mínútu áður en Omar Marmoush tvöfaldaði forskotið skömmu síðar.
Savinho innsiglaði svo sigurinn á 84. mínútu. Pep Guardiola hvíldi marga lykilmenn fyrir úrslit enska bikarsins á laugardag.
Með sigrinum er Manchester City nú aðeins tveimur stigum á eftir toppliði Arsenal þegar tvær umferðir eru eftir, og spennan í toppbaráttunni er því áfram í hámarki.