
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, hafði engan áhuga á að ræða leik West Ham og Arsenal í aðdraganda leiks sinna manna við Crystal Palace annað kvöld.
Arsenal vann West Ham 0-1 á sunnudag og er nú með fimm stiga forskot á lærisveina Guardiola á toppi deildarinnar. City á þó eftir að spila þrjá leiki en Skytturnar aðeins tvo.
Hamrarnir héldu að þeir hefðu jafnað gegn Arsenal í uppbótartíma á sunnudag en markið var dæmt af eftir skoðun í VAR. Guardiola var spurður út í atvikið á blaðamannafundi í dag en vildi aðeins einbeita sér að sínu liði og næsta leik.
„Crystal Palace,“ svaraði hann einfaldlega og þegar blaðamaður innti hann eftir frekari svörum endurtók hann það svar.
Þetta má sjá hér að neðan.
Pep Guardiola was asked how Arsenal’s late drama against West Ham affected Manchester City’s mood in the title race.
“Crystal Palace, Crystal Palace…” 👀 pic.twitter.com/RPmgTVMGZ4
— BeanymanSports (@BeanymanSports) May 12, 2026