

Fjölskylda fyrrum knattspyrnustjórans Matt Beard hefur opnað sig um erfiðan missi eftir að hann lést aðeins 47 ára gamall í september á síðasta ári. Beard, sem áður stýrði meðal annars kvennaliði Liverpool, fannst á heimili sínu í Flintshire og lést síðar af völdum heilaskaða á sjúkrahúsi. Hafði hann hengt sig.
Bróðir hans, Mark Beard, greindi frá síðustu skilaboðunum sem hann fékk frá Matt kvöldið örlagaríka. „Hann sendi mér skilaboð þar sem stóð: ‘Ég elska þig meira en þú munt nokkurn tímann vita, félagi.’ Ég svaraði: ‘Ég elska þig meira,’“ sagði Mark í viðtali við BBC.
Mark sagðist hafa vakað yfir bróður sínum á sjúkrahúsinu síðustu fimm dagana og meðal annars spilað uppáhaldslög frá Millwall fyrir hann á meðan fjölskyldan kvaddi.
Ekkja hans, Debbie Beard, segir fjölskylduna aldrei hafa séð þetta fyrir sér og að dagurinn hafi virst fullkomlega eðlilegur áður en harmleikurinn átti sér stað. Hún telur jafnframt að erfið reynsla hjá Burnley hafi haft mikil áhrif á andlega heilsu hans.
Í yfirheyrslu vegna rannsóknar málsins hélt Debbie því fram að Beard hefði upplifað einelti hjá félaginu eftir að hann vildi yfirgefa starf sitt þar.
Matt Beard skildi eftir sig eiginkonu, tvö börn og stjúpson. Andlát hans vakti mikla sorg í ensku knattspyrnusamfélagi, sérstaklega innan kvennaknattspyrnunnar.
Ef einstaklingar glíma við sjálfsvígshugsanir er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn. Einnig má hafa samband við Píeta-samtökin sem veita ókeypis ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.