fbpx
Fimmtudagur 07.maí 2026
433Sport

Áhugaverðar kjaftasögur berast úr Garðabæ – Albert segir að þessi gæti komið inn á næstu vikum ef Jökull fær sparkið

433
Fimmtudaginn 7. maí 2026 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Því var velt upp í Dr. Football í dag hvort einhver þjálfari í Bestu deild karla fengi að fjúka fyrir landsleikjahlé í byrjun júní. Horfðu menn aðallega í Garðabæinn í því samhengi.

„Ég held það verði einn þjálfari farinn og ég held það verði í Garðabæ,“ sagði Ragnar Bragi Sveinsson í þættinum og á þar við Jökul Elísabetarson, þjálfara Stjörnunnar.

Eftir tvo sigra í byrjun móts hefur hallað undan fæti hjá Stjörnunni og liðið tapað þremur leikjum í röð.

Rúnar Páll Sigmundsson. Mynd: Ernir

„Ég hitti Garðbæinga í gær og þeir voru með áhugavert skúbb: Ef Jökull verður látinn fara eru Stjörnumenn að íhuga að taka bara Rúnar Pál aftur frá Gróttu,“ sagði Albert Brynjar.

Rúnar gerði Stjörnuna að Íslandsmeisturum árið 2014 en Albert tók fram að um sögusagnir væru að ræða.

„Þetta er það sem Stjörnumenn vilja, hvort það sé óskhyggja eða ekki veit ég ekki. Þetta er algjört slúður.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Aron Pálmars tjáir sig um óveðurskýið sem er yfir Kaplakrika – „Ég ætla að vona að við séum að halda okkur réttu megin við núllið“

Aron Pálmars tjáir sig um óveðurskýið sem er yfir Kaplakrika – „Ég ætla að vona að við séum að halda okkur réttu megin við núllið“
433Sport
Í gær

Átök innan herbúða Real Madrid – Rudiger lét hnefana tala inni í klefa

Átök innan herbúða Real Madrid – Rudiger lét hnefana tala inni í klefa