fbpx
Miðvikudagur 06.maí 2026
433Sport

Í boði að fá 6 milljónir fyrir að horfa á sjónvarpið í rúman mánuð í sumar

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 6. maí 2026 22:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

FOX Sports hefur kynnt óvenjulegt starf í aðdraganda heimsmeistaramótsins í knattspyrnu, þar sem einn heppinn stuðningsmaður fær greitt fyrir að horfa á alla leiki mótsins.

Um er að ræða starf sem kallast „Chief World Cup Watcher“, en sá sem hlýtur starfið fær um 50.000 dollara í laun fyrir að fylgjast með öllum 104 leikjum mótsins. Verkefnið er unnið í samstarfi við atvinnuvefinn Indeed.

Starfið felst í því að horfa á alla leiki Heimsmeistaramótsins, sem fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó í sumar , yfir 39 daga tímabil frá 11. júní til 19. júlí.

Viðkomandi mun fylgjast með leikjunum úr sérútbúnu áhorfssvæði á Times Square í New York City, þar sem þúsundir ferðamanna og stuðningsmanna fara um dag hvern.

Auk þess þarf viðkomandi að deila efni á samfélagsmiðlum og miðla upplifun sinni af mótinu til áhorfenda.

„Þetta verður sögulegt mót og kallar á jafn einstakt starf,
“ sagði Robert Gottlieb, markaðsstjóri FOX Sports.

Starfið hefur þegar vakið mikla athygli og má búast við mikilli samkeppni um stöðuna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Rice leiður að sjá stöðuna á sínu gamla félagi – Gæti sett þá í ansi erfið mál um helgina

Rice leiður að sjá stöðuna á sínu gamla félagi – Gæti sett þá í ansi erfið mál um helgina
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Real Madrid gaf tveimur enskum stórliðum skýr skilaboð

Real Madrid gaf tveimur enskum stórliðum skýr skilaboð
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Leikmaður KR stígur fram og tjáir sig um átökin á Hlíðarenda – „Þetta var ekkert grín, þetta var bara fáránlegt“

Leikmaður KR stígur fram og tjáir sig um átökin á Hlíðarenda – „Þetta var ekkert grín, þetta var bara fáránlegt“
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Teikna upp dökka mynd af fjárhagsstöðu Chelsea eftir hörmulegt gengi

Teikna upp dökka mynd af fjárhagsstöðu Chelsea eftir hörmulegt gengi
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Vandræði liðsfélaga Glódísar um helgina vekja athygli

Vandræði liðsfélaga Glódísar um helgina vekja athygli
433Sport
Í gær

Orðaður við bæði United og Liverpool sem gætu tekið slaginn

Orðaður við bæði United og Liverpool sem gætu tekið slaginn
433Sport
Í gær

Davíð Þór tjáir sig um óvænt skipti Kára – „Þegar sú er ekki raunin er betra að leikmaðurinn finni sér nýtt lið“

Davíð Þór tjáir sig um óvænt skipti Kára – „Þegar sú er ekki raunin er betra að leikmaðurinn finni sér nýtt lið“