

Það er þungt óveðurský yfir FH í Bestu deild karla en eftir fimm umferðir er liðið með eitt stig og á botni deildarinnar ásamt ÍBV. Þetta sögufræga félag er að ganga í gegnum breytingar.
Jóhannes Karl Guðjónsson tók við þjálfun liðsins fyrir tímabilið og á að leiða breytingarnar, hópurinn er töluvert ódýrari en undanfarin ár og búið er að yngja mikið upp.
„Það var rosalega þungt,“ sagði Aron Pálmarsson, fyrrum landsliðsmaður í handbolta og FH-ingur í hlaðvarpinu, Steve Dagskrá um 3-4 tap liðsins gegn Fram á heimavelli um síðustu helgi. Þar komst FH í 3-1 en tapaði þeirri forystu niður.
Andri Geir Gunnarsson sem styður FH í blíðu og stríðu stýrir þættinum „Það er brekka hjá FH-ingum, það eru Blikarnir næst á föstudaginn. Þetta er mjög þungt,“ sagði Andri.
Aron sem er í þjálfarateymi FH í handbolta segir að nú sé verið að fylgja stefnu. „Það var sett stefna fyrir tímabilið, ég held að það sé verið að fylgja henni. Það er verið að spila á ungum leikmönnum.“
„En þessi hápressubolti sem við eigum að vera að spila?,“ sagði Aron og Andri sagði það ekki alveg vera að sjá á liðinu.
Þeir félagar fóru svo að ræða hvort FH væri að fara í gegnum sama sársauka og KR á síðustu leiktíð til að sjá árangur á næstu árum. „Við þurfum að vera spenntir fyrir næsta ári, munurinn á KR í fyrra og FH núna. KR verslaði í fyrra, þeir versluðu vel inn í fyrra. Þeir söfnuðu liðinu og bæta einum ágætum Arnóri Ingva við, við erum ekki búnir að vera að versla.“
Að lokum ræddu þeir sölu FH á Kára Kristjánssyni til Þróttar í gær en FH hafði keypt hann frá Þrótti í vetur. Aron telur að FH hafi í reynd vantað aurinn aftur í bókhaldið.
„Það er ein ástæða, ég ætla að vona að við séum að halda okkur réttu megin við núllið ef þetta er hluti af stefnunni.“