fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
433

Stjörnugrís gengur til liðs við Bestu deildina

433
Miðvikudaginn 22. apríl 2026 13:53

Á myndinni má sjá markaðsstjóra Stjörnugríss Einar Sigurð Eiríksson og Birgi Jóhannsson framkvæmdarstjóra ÍTF.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenskur toppfótbolti (ÍTF) hefur gert samstarfssamning við Stjörnugrís sem verður opinber matarsamstarfsaðili Bestu deildarinnar. Með samningnum tryggir Stjörnugrís sér sýnileika innan umgjörðar Bestu deildarinnar og réttinn til að kalla vörur sínar opinberan mat deildarinnar.

Með samningnum bætist öflugt íslenskt fyrirtæki í hóp samstarfsaðila deildarinnar.

„Við erum mjög ánægð með að fá Stjörnugrís til liðs við Bestu deildina. Stjörnugrís er sterkt og traust íslenskt fyrirtæki og það er afar jákvætt að fá jafn öflugan samstarfsaðila til að styðja við starfsemi deildarinnar,“ segir Birgir Jóhannsson framkvæmdarstjóri ÍTF.

Markaðsstjóri Stjörnugrís segir samstarfið mikilvægt fyrir fyrirtækið.

„Við hjá Stjörnugrís erum stolt af því að hefja samstarf við Bestu deildina. Það er okkur mikilvægt að styðja við íslenskt íþróttalíf og sérstaklega stærstu íþrótt landsins. Við sjáum einnig ótal tækifæri í samstarfinu sem vonandi verða að veruleika í náinni framtíð,“ segir Einar Sigurður Eiríksson, markaðsstjóri Stjörnugríss.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Að öllu óbreyttu mun United ekki kaupa í þessa stöðu í sumar

Að öllu óbreyttu mun United ekki kaupa í þessa stöðu í sumar
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Dregið í bikarnum og Bestu deildarliðin mæta til leiks – Eitt lið úr 2. deild

Dregið í bikarnum og Bestu deildarliðin mæta til leiks – Eitt lið úr 2. deild
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Fyrrum leikmaður Manchester City á óskalista Arteta

Fyrrum leikmaður Manchester City á óskalista Arteta
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Rooney telur að Arsenal skáki City og nefnir hvers vegna

Rooney telur að Arsenal skáki City og nefnir hvers vegna
433Sport
Í gær

Talið að United gæti losað sig við allt að 13 leikmenn í sumar

Talið að United gæti losað sig við allt að 13 leikmenn í sumar
433Sport
Í gær

Segir þetta kröfuna í Kópavogi á komandi vikum

Segir þetta kröfuna í Kópavogi á komandi vikum